Ingi Rúnar setti vallarmet - Hlíðavöllur opnar sem 18 holur
Ingi Rúnar Gíslason, kylfingur úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ, setti í gær glæsilegt vallarmet á Hlíðavelli þegar hann lék völlinn af hvítum teigum á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Í gær fór fram Opna Golfskálinn mótið og tóku yfir 200 kylfingar þátt í mótinu.
Völlurinn var í fyrsta sinn leikinn sem 18 holu golfvöllur í opnu móti en fjórar nýjar brautir hafa litið dagsins ljós á Hlíðavelli. Ingi Rúnar sigraði örugglega í höggleiknum á 66 höggum en Stefán Már Stefánsson úr GR varð annar á 69 höggum og Magnús Lárusson úr GKj þriðji á 71 höggi.
Önnur úrslit urðu eftirfarandi:
Meistaraflokkur:
1. Ingi Rúnar Gíslason GKJ 66 -6
2. Stefán Már Stefánsson GR 69 -3
3. Magnús Lárusson GKJ 71 -1
B-flokkur
1. Guðmundur G. Vilhjálmsson GKJ 39 punktar
2. Brynhjar Örn Rúnarsson GN 38 punktar
3. Ragnar Ingvarsson GÁS 37 punktar
C-flokkur
1. Vignir Þór Birgisson GKJ 40 punktar
2. Davíð Jón Arngrímsson GS 38 punktar
3. Páll Ásmundsson GKJ 38 punktar
Aukaverðlaun - sæti í punktakeppni með forgjöf:
20.sæti - Ólafur Hreinn Jóhannesson GSE 36 punktar
30.sæti - Guðný Helgadóttir GKJ 35 punktar
40.sæti - Elís Rúnar Elísson GKJ 34 punktar
94.sæti - Pétur Freyr Pétursson GR 30 punktar
Nándarverðlaun:
1.braut - Jón Kristbjörn Jónsson
6.braut - Guðjón Gunnarsson
8.braut - Rafn Stefán Rafnsson
9.braut - Guðjón Gunnarsson
12.braut - Elís Elísson
13.braut - Pétur Pétursson
15.braut - Þór Gunnlaugsson
16.braut - Ólafur Jóhannesson
18.braut - Pétur Óskar Sigurðsson