Þrautseigja og þolinmæði hjá Jóhannesi á Hvaleyrinni
Jóhannes Guðmundsson úr GR fagnaði sigri í karlaflokki í Hvaleyrarbikarnum um síðustu helgi eftir bráðabana við reynsluboltann og atvinnukylfinginn Guðmund Ágúst Kristjánsson.
„Þegar komið er í bráðabana þá reyni ég að forðast mistök. Þetta er maður á móti manni og ég nálgast það þannig að gera ekki mistök. Ekki síst eins og holustaðsetningin var á 15. flötinni í dag. Að reyna að komast nálægt öðru höggi er svolítil áhætta,“ segir Jóhannes sem var þolinmóður í mótinu.
„Þrautseigjan skipti mestu máli. Völlurinn er erfiður og þá heima seinni 9 holurnar. Þar eru nokkrar holur sem eru mjög strembnar. Besta veðrið var fyrsta keppnisdaginn en vindurinn varð erfiðari eftir þá. Þá gat maður þurft að sætta sig við að vera ekki fyrir góðan högg. Maður verður bara að taka á við það."
Jóhannes segir Hvaleyrarvöll henta sér ágætlega og verður áhugavert að sjá til hans á Íslandsmótinu í ágúst.
„Völlurinn er frábær og hentar mér vel. Ég er tiltölulega högglangur og seinni 9 holurnar eru þannig að maður græðir á högglengd. En Íslandsmótið er fjögurra daga mót og þá reynir enn meira á þrautseigjuna. Það byrja allir jafnir og þarf að malla í gegnum slíkt mót,“ sagði glaðbeittur Jóhannes Guðmundsson eftir sigurinn.