Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory í stuði á Masters - leiðir með sex höggum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 23:00

Rory í stuði á Masters - leiðir með sex höggum

Rory Mcilroy gefur ekkert eftir í titilvörninni á Masters en hann átti magnað golfhring þegar hann lék á sjö undir pari, 65 höggum á öðrum degi, og hann leiðir mótið með sex höggum eftir 36 holur. Enginn titilverjandi í sögu Masters hefur haft jafn mikið forskot eftir tvo daga.

Rory byrjaði með látum og fékk fugl á 2., 3., og 4. holu og leiddi þá með þremur höggum. Hann tapaði höggi á 5. holu og Patrick Reed jafnaði við hann í forystu um miðjan hringinn. Á seinni níu holunum setti Norður Írinn hins vegar í fluggír og fékk sex fugla, og í eina skiptið sem hann lenti í smá vandræðum, á 17. holu, þurfti hann að vippa frá um 40-50 metra færi. Hann sló frábært högg sem endaði í holu. Rory átti síðan frábært upphafshögg á lokabrautinni og geggjað innáhögg með níunni af 143 metra færi sem endaði tæpa 3 metra frá holu. Hann setti púttið í holu og náði sjötta fuglinum á síðustu sjö holunum. Algerlega magnað golf.

Næstu kylfingar eru Sam Burns og Patrick Reed á sex undir pari. Þrír kylfingar eru á fimm undir, allt félagar Rory’s frá Evrópu: Justin Rose, Shane Lowry og Tommy Fleetwood. Evrópukylfingar enn og aftur góðir á Augusta.

Aðrir þrír kylfingar hafa varið titilinn á Masters: Jack Nicklaus 1965-1966, Nick Faldo 1989-1990 og Tiger Woods 2000-2001 og það eru ár og dagar síðan einhver hefur haft svona mikla forystu eftir tvo daga. Tiger var reyndar með yfirburði þegar hann vann í fyrsta sinn, 1997 og sigraði með tólf högga mun.

Rory virðist vera í mjög góðum gír. Hann er afslappaður, gefur fimmur hér og þar og svo virðist sem sigurinn á mótinu í fyrra hafi gert honum mikið, en hann kláraði svokölluðu alslemmu með því að sigra en Masters var eina risamótið sem hann hafði ekki unnið.

Sjáið vippið á 17. holu. 

Staðan