Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Litlu fleiri vilja breyta röðun brauta á Hólmsvelli til fyrra horfs
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:15

Litlu fleiri vilja breyta röðun brauta á Hólmsvelli til fyrra horfs

Litlu munaði í niðurstöðum viðhorfskönnunar meðal félagsmanna Golfklúbbs Suðurnesja um uppröðun brauta á Hólmsvelli en könnuninni lauk 6. apríl síðastliðinn. 46% vildu breyta til fyrra horfs, 40% vildu halda núverandi uppröðun og 14% voru hlutlausir.

Alls tóku 557 félagsmenn þátt, sem jafngildir 64% svarhlutfalli. Af þeim studdu 257 félagsmenn (46,14%) röðun vallarins eins og hún var árið 2023, 223 félagsmenn (40,04%) vildu halda 2025 röðuninni og 77 félagsmenn (13,82%) voru hlutlausir.

Í frétt frá klúbbnum kemur fram að mikilvægt sé að taka fram að niðurstöður könnunarinnar þýði ekki að vellinum verði snúið til baka strax eða að breytingar verði gerðar á þessu ári. Könnunin sé eitt af mikilvægustu innleggjum í stærri og heildstæðari stefnumótunarvinnu sem nú er hafin.

„Niðurstöðurnar gefa mikilvæga innsýn inn í umræðuna um framtíð Hólmsvallar. Um leið er þó mikilvægt að hafa í huga að könnunin segir okkur ekki nákvæmlega af hverju félagsmenn völdu eins og þeir gerðu. Hún kallar fram afstöðu, en skýrir ekki í smáatriðum hvaða atriði vógu þyngst hjá hverjum og einum. Í umræðunni hefur jafnframt komið fram að hjá mörgum er sterk tenging við eldri útfærslur vallarins, þar á meðal gömlu 1. holuna sem par 5. Það sjónarmið er vel þekkt og er raunar í takti við þá framtíðarsýn sem nú er til skoðunar, enda hentar sú hola að mörgu leyti betur sem par 5,“ segir í frétt GS.

Í ár eru jafnframt 40 ár frá því golfskálinn í Leiru var vígður en á sama tíma var stækkun golfvallar í 18 holur vígðar og Landsmót í golfi 1986 fór fram.

Af því tilefni, og með framtíð klúbbsins að leiðarljósi, hefur stjórn Golfklúbbs Suðurnesja hafið undirbúningsvinnu með verkfræðistofu til að horfa 5–15 ár fram í tímann, í anda þeirrar sýnar sem forverar klúbbsins unnu eftir. Þar er horft til framtíðarsýnar fyrir svæðið í heild, meðal annars varðandi uppröðun brauta, lengd og par vallarins, æfingasvæði, par 3 völl og mögulegar breytingar á golfskálanum. Samhliða þeirri vinnu er einnig verið að skoða stærri spurningar um frekari uppbyggingu svæðisins og það hlutverk sem Hólmsvöllur gæti gegnt innan golfíþróttarinnar til framtíðar. Þegar sú vinna hefur tekið skýrari mynd mun stjórn deila henni með félagsmönnum og kalla eftir frekari innsýn, ábendingum og umræðu.