Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kristján Þór með brjósklos í baki
Kristján Þór Einarsson á Íslandsmótinu í höggleik á Korpu. Myndir/Kylfingur.is
Þriðjudagur 30. júlí 2013 kl. 14:25

Kristján Þór með brjósklos í baki

Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili mun taka því rólega næstu vikur. Í ljós hefur komið að..

Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili mun taka því rólega næstu vikur. Í ljós hefur komið að hann er með brjósklos í baki. Kristján kenndi sér meins í baki á lokahringnum í Íslandsmótinu í höggleik og leitaði í kjölfarið til lækna. Eftir myndatöku kom í ljós að Kristján er með brjósklos neðarlega í mjóbaki.

„Þetta eru mikil vonbrigði. Ég stífnaði og festist í baki í apríl og var rúmliggjandi í nokkra daga. Það gekk tilbaka en ég fór að finna aftur fyrir stífleika í baki eftir Íslandsmótið í holukeppni. Þetta var orðið mjög slæmt á lokahringnum á Korpunni og ákvað að láta líta á þetta,“ segir Kristján sem er 25 ára gamall og varð Íslandsmeistari í höggleik í Vestmannaeyjum árið 2008.

Kristján hafði áformað að taka þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í haust en ætlar að slá því á frest um ár vegna meiðsla. Hann vonast þó til að meiðslin séu ekki það alvarleg að hann þurfi að fara í uppskurð.

„Ég mæti í togbekk hjá sjúkraþjálfara á hverjum degi og ég vona að þetta gangi tilbaka á næstu vikum. Það er hundleiðinglegt að lenda í þessum meiðslum og ég vona að ég þurfi ekki að fara í uppskurð. Það kemur í ljós á næstu vikum hvort þetta gangi tilbaka,“ segir Kristján.

Þrátt fyrir meiðslin þá er Kristján bjartsýnn á að golfsumarið sé ekki búið. „Ég fékk boð í Einvígið á Nesinu og er spenntur fyrir að leika í því móti. Ég ætla að sjá til hvort að ég geti verið með. Ég reikna ekki með því að vera með í næsta stigamóti og það er óvíst með sveitakeppnina. Ef það gengur vel þá gæti ég kannski náð síðasta stigamóti sumarsins á Eimskipsmótaröðinni. Það er á hreinu að ég mun leika í Sveitakeppninni fyrir Kjöl en það verður hins vegar lítið um æfingar næstu vikurnar. Ég mun taka því rólega.“