Fréttir

Landsliðsmiðvörðurinn og fleiri í Leirunni
Landsliðsmaðurinn Kári Árnason á fyrsta teig í Leirunni. Kylfingur.is/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 22. apríl 2020 kl. 12:03

Landsliðsmiðvörðurinn og fleiri í Leirunni

Kári Árnason, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu og hundruð annarra kylfinga eru búnir að taka golfkylfurnar fram og eru mættir á vellina sem hafa opnað. Fyrstu kylfingarnir voru mættir kl. 7 í morgun, miðvikudag á Hólmsvöll í Leiru. Um 200 manns eru skráðir á teig í dag og á morgun, sumardaginn fyrsta. Einnig er vel bókað í Sandgerði og í Þorlákshöfn.

Að sögn Birkis Þórs Karlssonar, vallarstjóra Hólmsvallar var veturinn erfiður og mikið sem barst upp á sjávarbrautirnar í veðurofsanum sem oft hefur geysað síðustu mánuði. Hann sagði að völlurinn kæmi þó ágætlega undan vetri og væri að taka vel við sér. Búið væri að bera áburð á flatir í tvígang á síðustu tveimur vikur og tíðin þannig að grasið hefur tekið vel við sér. Þá hefði einnig verið árangursríkt að leggja dúk yfir flatir á 2. og 3. braut í nokkurn tíma. Áfram yrði haldið í vorverkum næstu daga, meiri áburður settur á völlinn og unnið við að koma glompum í gott horf. „Þetta lítur bara ágætlega út og fer batnandi með hverjum deginum. Hlýindi síðustu daga hafa hjálpað mikið og útlitið gott með næstu daga,“ sagði Bjarki.

John Steven Berry í mótastjórn GS sagði að allt hafi gengið vel þrátt fyrir að ræst væri út með 10 mínútna millibili en því yrði breytt frá og með föstudeginum, þá yrði ræst út með 15 mínútna millibili. Kylfingar sem mæta á teig greiða vallargjald með millifærslu og fá upplýsingar um það við golfskála sem er lokaður.

Meðal kylfinga sem voru mættir á teig í Leirunni í morgun var landsliðs knattspyrnumaðurinn Kári Árnason. Hann lenti í smá vandræðum á fyrsta teig en gekk þó brosandi út á völl eins og fleiri kylfingar.

Ljósmyndari kylfings.is smellti þessum myndum á miðvikudagsmorgni.

Kylfingar á fyrsta teig í Leiru á síðasta vetrardegi.

Suðurnesjakylfingurinn Júlíus Jón Jónsson á 8. teig í blíðunni í Leiru.

Kylfingur leggur inn vallargjald. John Berry í mótanefnd Golfklúbbs Suðurnesja er á vaktinni og fylgist með að allt fari vel fram á tímum COVID-19.

Púttað í bolla á veirutímum.

Vorgolf í Leiru