Lokapútt Haraldar fyrir 59 höggum svo nálægt - video
„Ég hefði viljað 59 en sætti mig við 60,“ sagði Haraldur Franklín Magnús eftir að hafa lokið leik á 60 höggum í lokahringnum á Dormy Open í Svíþjóð í dag. Púttið var grátlega nálægt að detta eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Haddi átti fínasta innáhögg en hann sagði að brotið í púttinu hefði verið mikið en boltinn rann rétt framhjá holubrúninni.
Með þessu árangri, 2. sætið, vann Haraldur sér betri stöðu á HotelPlanner mótaröðinni og verður m.a. á næsta móti í Póllandi. Fyrir mótið var hann í 154. sæti en er nú kominn í 54. sæti.
Fyrir árangurinn vann Haraldur sér inn tæpar 5 milljónir króna í peningaverðlaun eða 33 þúsund Evrur sem er hæsta upphæð sem hann hefur unnið sér inn í atvinnumannamóti.
Inches from the magic number 🤏🏻
Great effort, Magnus 🇮🇸#DormyOpen pic.twitter.com/D7XNae8zAn
Sjá myndskeið og viðtal eftir hring.
https://www.instagram.com/p/DOBUeJOCFDY/