Meistaramót GR fer fram 4.-10. júlí

Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldið 4.-10.júlí í sumar. Leikið verður á Litla vellinum á Korpu, Korpúlfsstaðarvelli og Grafarholtsvelli. Misjafnt er hve marga hringi flokkar leika, tvo til fjóra. Mótið er sprungið í núverandi mynd og því hefur verið ákveðið að hafa takmörkun á fjölda þátttakenda í ár.
„Við komum 600 manns fyrir og eigi fleiri en 90 manns geta skráð sig í hvern flokk. Skráning verður auglýst síðar en hún verður í kringum mánaðarmótin júní/júlí. Þeim sem ætla sér að leika í fjölmennustu flokkunum sem eru 2.og 3.flokkur karla er bent á að skrá sig sem fyrst þegar opnar fyrir skráningu á www.golf.is til að tryggja sér pláss,“ segir m.a. á heimasíðu GR.
„Þegar fullt verður í flokk mun verða tekið niður á biðlista. Að öðru leiti eru ekki miklar breytingar á mótinu frá árinu 2009 enda þótti það takast með eindæmum vel og voru veðurguðirnir okkur hliðhollir. Þó er vert að taka það fram að 3.flokkur karla leikur þrjá hringi í mótinu í ár í stað fjögurra hingað til. 3.flokkur karla hefur leik sunnudaginn 4.júlí og lýkur leik þriðjudaginn 6.júlí. Vel kemur til greina að breyta forgjafamörkum í karlaflokkunum en nefndin mun skoða það þegar nær dregur.“
Hér má sjá leikdagana fyrir hvern flokk
Myndir: grgolf.is og Kylfingur.is: Hér að ofan má sjá sigurvegara í Meistaramóti GR 2009 og á neðri myndinni er Helena Árnadóttir en hún varð klúbbmeistari GR á síðasta ári.
[email protected]


