Íslenski fáninn á 18. flöt á Öndverðarnesvelli
Íslenski fáninn sómir sér vel á 18. flöt golfvallarins hjá Golfklúbbi Öndverðarness. Margeir Vilhjálmsson, framkæmdastjóri GÖ sagðist hafa fengið hugmyndina þegar hann var að spila golf á Spáni í vor en þar var spænski fáninn á nokkrum golfvöllum. Fáninn er við hún á flaggstöng holunnar og svo er standur til að geyma fánastöngina í flatarkanti meðan púttað er, svo ekki þurfi að leggja fánann á jörðina.
„Nú eru komin ný fánalög og við getum haft okkar íslenska fána á lofti allar sólarhringinn fram á haust,“ sagði Margeir en völlurinn í Öndverðarnesi opnaði nýlega og var ágæt traffík þar um hvítasunnuhelgina.
Margeir segir völlinn hafa komið ágætlega undan vetri: „Þetta er allt að fara í gang og framundan er gott golfsumar,“ sagði Margeir.
Í Öndverðarnesi eru all nokkur opin mót sem hafa verið vel sótt, m.a. Hjóna- og parakeppni í júlí, opið mót um verslunarmannahelgina, svo dæmi sé tekið. Öndverðarnesvöllur hefur verið einn mest sótti völlur á Suðurlandinu í mörg ár en þétt sumarhúsabyggð er við völlinn og hún hefur stækkað á undanförnum árum. Flestir félagar klúbbsins eru úr hópi sumarhúsaeigenda og því er völlurinn oft mjög þétt setinn um helgar en meira pláss á virkum dögum.


