Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Mikil ásókn í ódýrar golfkúlur
Mánudagur 4. júní 2012 kl. 17:14

Mikil ásókn í ódýrar golfkúlur

Það hefur verið mikið að gera hjá golfkúlur.is nú í byrjun sumars og eru sífellt fleiri kylfingar sem kjósa að nýta sér þjónustu fyrirtækisins. Golfkúlur.is gekk nýverið í gegnum eigendaskipti og er nú í eigu Sérmerkt ehf.

„Það hefur verið mjög mikið að gera og sumarið fer vel af stað enda hefur veðrið verið gott. Töluvert að aukast að fyrirtæki kaupi merktar golfvörur og með vörum frá golfkúlur.is.Við getum einnig boðið fyrirtækjum ennþá betri verð á merktum boltum,“ segir Ólafur Jakobsson hjá Sérmerkt ehf. sem rekur golfkúlur.is.

„Gæði boltanna eru mjög góð. Boltarnir eru hreinsaðir og flokkaðir í þrjá gæðaflokka. Það er varla hægt að kalla þetta „vatnabolta“ þar sem að fæstir þeirra hafa lent í vatni. Boltar sem eru í A+ eða A flokki eru flestir það vel með farnir að þeir eru nánast eins og nýir. Við erum einnig með endurnýjaða bolta sem eru tilvaldir til að merkja með logo. Kylfingar sem versla reglulega hjá okkur eru mjög sáttir með boltanna og eru jafnframt að spara sér 40-50% samanborið við nýja bolta.“

Það er tilvalið fyrir kylfinga að kíkja á heimasíðuna hjá golfkúlur.is og kynna sér hvað fyrirtækið hefur upp á að bjóða. Sölubás hefur verið opnaður á 1. hæð í Kringlunni og þar er hægt að gera góð kaup.

Sérmerkt ehf. tekur einnig að sér ýmis verkefni í merkingu og golfboltum og golfbúnaði. Hægt er að sjá frekar hvað fyrirtækið hefur upp á að bjóða á heimasíðunni sérmerkt.is.