Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Minning: Georg Tryggvason
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 28. maí 2026 kl. 11:11

Minning: Georg Tryggvason

Félagar í Golfklúbbi Mosfellsbæjar kveðja í dag heiðursfélaga og stofnanda klúbbsins, Georg Tryggvason, en hann lést 14. maí 84 ára að aldri. Georg og félagi hans Örn Höskuldsson voru í framlínu þeirra sem hófu uppbyggingu golfvallar í Mosfellsbæ.

Hér er samantekt sem klúbburinn birti af þessu tilefni:

Ágætu GM félagar.

Í dag kveðjum við Georg Tryggvason heiðursfélaga Golfklúbbs Mosfellsbæjar sem lést 14. maí síðastliðinn, 84 ára að aldri.

Nú í ár eru 40 ár liðin frá því að byrjað var að spila golf í Mosfellsbæ. Það voru tveir aðilar sem fóru þar fremstir í flokki, Georg Tryggvason og Örn Höskuldsson. Við sem spilum golf í dag á Hlíðavelli eigum Georg Tryggvasyni mikið að þakka. Það var ekki einfalt verk fyrir rúmlega 40 árum síðan að koma upp golfvelli en með miklum dugnaði og mikilli vinnu tókst það og Hlíðavöllur leit dagsins ljós.

Georg flutti frá Vestmannaeyjum 1978 og settist þá að í Mosfellssveit. Georg og Örn sem voru miklir vinir voru þegar byrjaðir að spila golf, Georg í Vestmannaeyjum og Örn í Reykjavík. Þeir fóru saman í að stofna golfklúbb í Mosfellssveit og var Golfklúbburinn Kjölur stofnaður árið 1980. Þeir fengu nokkra mæta aðila með sér og úr varð að farið var af stað í að leita að hentugu landsvæði fyrir golfvöll. Það gekk brösuglega og það var ekki fyrr en sumarið 1986 sem byrjað var að spila golf á Hlíðavelli. Ein helsta ástæðan fyrir því að Hlíðavöllur er þar sem hann er í dag er að Georg og Örn lögðu á það mikla áherslu að golfvöllurinn væri ekki langt frá byggð svo hann gæti orðið hluti af tómstundastarfi barna og unglinga. Sem hann varð svo sannarlega og er enn í dag.

Georg vann á þessum árum og lengi áfram gríðarlega mikið og óeigingjarnt starf í uppbyggingu Hlíðavallar sem og í golfklúbbnum Kili. Honum þótti ávallt mjög vænt um klúbbinn sinn og kom reglulega upp á Hlíðavöll ásamt Erni vini sínum, þótt golf hringjunum fækkaði með árunum. Þeir félagar slógu upphafshöggin á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór árið 2020 á Hlíðavelli, 40 árum eftir að golfklúbburinn Kjölur var stofnaður. Var það í fyrsta sinn sem Íslandsmótið var spilað þar og sannarlega ekki það síðasta.

Það hefur mikið breyst í golfi frá því að þeir félagarnir Georg og Örn fóru af stað með háleitar hugmyndir um stofnun golfklúbbs í Mosfellssveit þegar þeir fluttu hingað fyrir tæpum 50 árum. En það er fyrir tilstilli þeirra sem við leikum golf á Hlíðavelli í dag og fyrir það verðum við þeim ævinlega þakklát. Hlíðavöllur er gríðarlega vel staðsettur í túnfæti Mosfellsbæjar og er það alveg einstakt að hafa svona gott aðgengi að golfvellinum. Það var þeirra framsýni sem gerði það að verkum að svo er.

Við sendum fjölskyldu Georgs innilega samúðarkveðjur.

Georg með nánustu fjölskyldu á golfvellinum en dætur hans hófu golfleik fyrir ekki löngu síðan og náðu einum hring með föður sínum.