Minningarmót Friðgeirs á Gufudalsvelli á sunnudag
Minningagolfmót um Friðgeir Kristjánsson, húsasmíðameistara og kylfing úr Hveragerði, verður haldið sunnudaginn 18. ágúst næstkomandi á Gufudalsvelli í Hveragerði. Friðgeir lést árið 2005 en frá árinu 2006 hefur verið haldið minningarmót í samvinnu við Golfklúbb Hveragerðis. Mótið verður haldið í áttunda sinn í ár og fer fram á sama tíma og Blómstrandi dagar standa sem hæst í Hveragerði.
Verðlaun eru eftirfarandi:
Verðlaun fyrir Besta skor: Áletraður verðlaunabikar. Golfpakki 1 á Hótel Hamri sem inniheldur, 3ja rétta kvöldverð, gistingu fyrir 2 í eina nótt, morgunverðarhlaðborð og tvo 18 holu hringi á Hamarsvelli. Andvirði 41.800,-
Verðlaun fyrir 1. sæti með forgjöf: Farandbikar hannaður og smíðaður af Friðgeiri Kristjánssyni heitnum, húsasmíðameistara og golfara. Áletraður verðlaunabikar. Golfpakki 1 á Hótel Hamri sem inniheldur, 3ja rétta kvöldverð, gistingu fyrir 2 í eina nótt, morgunverðarhlaðborð og tvo 18 holu hringi á Hamarsvelli. Andvirði 41.800,-
Verðlaun fyrir 2. sæti með forgjöf: Áletraður verðlaunabikar. Sælulykill á Hótel Örk, sem innifelur, þriggja rétta kvöldverð, gistingu fyrir 2 í eina nótt, morgunverð og aðgang að öllum þægindum hótelsins þar með talið golf á hótelvellinum. 9 holu golfvöllur (maí – september), sundlaug með vatnsrennibraut, tveir heitir pottar, gufubað, knattborðsstofa, pílukast, borðtennisborð og nýjasta viðbótin sem er fótboltagolfvöllur. Þráðlaust net er á hótelinu og er það innifalið. Auk þess 18 holu golfhringur á Gufudalsvelli. Andvirði 28.900,-
Verðlaun fyrir 3. sæti með forgjöf: Áletraður verðlaunabikar. Sælulykill á Hótel Örk, sem innifelur, þriggja rétta kvöldverð, gistingu fyrir 2 í eina nótt, morgunverð, og aðgang að öllum þægindum hótelsins þar með talið golf á hótelvellinum. 9 holu golfvöllur (maí – september), sundlaug með vatnsrennibraut, tveir heitir pottar, gufubað, knattborðsstofa, pílukast, borðtennisborð og nýjasta viðbótin sem er fótboltagolfvöllur. Þráðlaust net er á hótelinu og er það innifalið. Auk þess 18 holu golfhringur á Gufudalsvelli. Andvirði 28.900,-
Lengsta teighögg: Gjafabréf frá Golfbúðinni Dalshrauni í Hafnarfirði. Andvirði 10.000,-
Nándarverðlaun á 7. braut: Gjafabréf á glæsilega ostakörfu frá Mjólkursamsölunni.
Nándarverðlaun á 9. braut: Gjafabréf á glæsilega ostakörfau frá Mjólkursamsölunni.
Öldungaviðurkenning: Elsti þáttakandi í mótinu fær góða viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Að móti loknu er dregið úr skorkortum með hinu skemmtilega málsháttarlottói: Vinningar eru meðal annars frá Kjörís í Hveragerði, HNLFÍ í Hveragerði, Golfbúðinni Dalshrauni í Hafnarfirði og frá Arion banka í Hveragerði.
Skráning golfmótið er í síma: 483 5090 og á www.golf.is.


