Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Missti af golfhring með Curry
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 20. nóvember 2026 kl. 11:38

Missti af golfhring með Curry

Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta er mjög liðtækur kylfingur en hann er atvinnumaður á Spáni og leikur nú með Dreamland Gran Canaria. Hann byrjaði ungur strákur í golfi með Guðmundi Bragasyni, föður sínum. Það eru all nokkrir fínir golfvellir á Spáni og Jón fer af og til og spilar og gerði það nýlega með foreldrum sínum og þau spiluðu þá hinum fræga Real Club de Golf de Las Palmas.

Jón Axel er næstur á teig og svaraði nokkrum spurningum:

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Þegar ég var 4-5 ára, Pabbi hefur alltaf verið í golfi og tók mig með upp á völl og spilað síðan þá.

Helstu afrek í golfinu?

Svo sem ekkert svakalegt, líklegast bara komast undir 5 í golfinu

Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?

Þegar maður ætlar i einhverja hetjustæla framhjá steinum eða trjám og smellhittir boltann í steinninn eða trén.

Hefurðu farið holu í höggi og þá hvar?

- Nei á það eftir.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?

-Elvar Friðriksson og Martin Hermannson. Bauðst hringur meðan Curry þegar hann var á Íslandi en var erlendis. Þannig að ég þarf einhver tímann að taka hann i golfinu.

Hver voru markmið sumarsins?

Reyna bæta sig bara í að vera beinni og stöðugri.

Mannstu eftir fyrstu leiðbeiningunum sem þú fékkst?

Aldrei að líta upp úr sveiflunni.

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?

-Nei ekkert þannig hjá mér.

Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?

-Púttin, þau voru rándýr í sumar.

Jón Axel Guðmundsson:

Aldur: 30

Klúbbur: GG

Forgjöf:  6.5

Uppáhaldsmatur: Píta

Uppáhaldsdrykkur: Vitamen Well

Uppáhaldskylfingur: Tiger Woods

Þrír uppáhaldsgolfvellir: Grindavík, Mosfellsbær, Grafarholt

Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 1. hola í Grindavík, 8. hola í Borgarnesi og 6. holan í Grindavik

Erfiðasta golfholan: 15. holan í Grindavik

Erfiðasta höggið: Langt pútt

Ég hlusta á: Pabba með leiðsögn í golfinu

Besta skor: 69

Besti kylfingurinn: Ég

Golfpokinn: Vesser 

Dræver: Ping G400

Brautartré: Titleist Gts3

Járn: Titleist I200

Húsatóftavöllur er í miklu uppáhaldi hjá Grindvíkingnum.