Fréttir

Ólafía Þórunn um miðjan hóp fyrir lokahringinn í Hollandi
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær upphafshögg á 9. braut í gær. Ljósmynd: Tristan Jones/LET
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
sunnudaginn 17. júlí 2022 kl. 07:44

Ólafía Þórunn um miðjan hóp fyrir lokahringinn í Hollandi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er á 3 höggum yfir pari fyrir lokahringinn á Big Green Egg Open í Hollandi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Ólafía Þórunn lék þriðja hringinn í gær á 71 höggi eða á 1 höggi undir pari Rosendaelsche vallarins. Okkar kona lék einnig vel á fyrsta hring eða á 2 höggum undir pari en henni fataðist aðeins flugið á öðrum hringnum er hún kom í hús á 6 höggum yfir pari.

Þetta er fjórða mót Ólafíu Þórunnar síðan hún hóf endurkomu sína á keppnissviðið eftir að hafa borið sitt fyrsta barn undir belti. Henni tókst ekki að komast í gegnum niðurskurðinn í hinum mótunum þremur.

Anna Nordqvist frá Svíþjóð er með eins höggs forskot á þær Vani Kapoor frá Indandi og Sarah Schober frá Austurríki fyrir lokahringinn.

Staðan á mótinu

Ólafía Þórunn verður ræst út á lokahringinn klukkan hálfníu í dag á íslenskum tíma.