Örn Ævar afrekaði það sem besti kylfingur heims náði ekki - Vann Donald í holukeppni
Örn Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja hefur afrekað nokkuð sem besti kylfingur heims, Þjóðverjinn Martin Kaymer, hefur ekki náð að gera á sínum ferli, að vinna Englendinginn Luke Donald í holukeppni. Donald fór með sigur í Heimsmótinu í holukeppni sem lauk í Arizona í gær eftir 3/2 sigur á Kaymer í úrslitaleik.
Það vita það eflaust fáir íslenskir golfáhugamenn en Örn Ævar lagði Donald af velli í Svíþjóð í Evrópumóti landsliða árið 2001. Donald var þá einn af bestu áhugamönnum heims en Örn Ævar hafði betur 1/0 á 18. holu.
„Þetta er eitthvað sem ég á alltaf eftir að geta montað mig af. Þetta sannar allavega að ég gat eitthvað í golfi,“ sagði Örn Ævar í samtali við Kylfing.is og hló. „Hann var stjarna í háskólagolfinu á þessum tíma og ég vissi alveg hver þetta var. Þetta var góður leikur en ég hafði betur á 18. holunni. Donald er frábær kylfingur og hitti á frábæra viku.“
Donald er nú kominn upp í þriðja sæti á heimslistanum en að sögn Arnar var hann afar viðkunnanlegur þegar þeir léku saman fyrir áratug. „Hann var mjög rólegur og flottur strákur. Donald var alveg á jörðinni og það var hægt að spjalla við hann. Það voru engir stælar í honum og mjög viðkunnanlegur,“ sagði Örn Ævar.
Það voru fleiri en Örn sem léku við þekkta kylfinga í þessu móti. Björgvin Sigurbergsson lék á móti besta áhugamanni Breta í áratugi, Gary Wholstenholme en hann gerðist atvinnumaður nýlega og hefur náð frábærum árangri á Öldungamótaröðinni í Evrópu. Þá lék Haraldur Hilmar Heimisson við Nick Dougherty. Hilmar og Björgvin töpuðu sínum viðureignum í leikjum sínum við Englendingana sem tryggðu sér 3. sætið á mótinu en Ísland varð í 4. sæti. Það er besti árangur Íslands fyrr og síðar í liðakeppnum.
Verður virkur á mótaröðinni í sumar
Örn Ævar varð síðast Íslandsmeistari í höggleik fyrir tíu árum og ætlar sér að vera virkur á mótaröðinni næsta sumar. Hann er byrjaður að æfa af krafti og vonast til að blanda sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn en leikið verður á heimavelli hans, Hólmsvelli í Leiru, í sumar.
„Ég er byrjaður að æfa og ætla að spila mikið í sumar. Það eru tíu ár síðan ég varð Íslandsmeistari og svo er Íslandsmótið á heimavelli. Það verður sett aukapúður í þetta í sumar.“
Efst takast þeir í hendur, Örn og Donald eftir viðureignina á Ljunghusens golfvellinum í Svíþjóð.
Haraldur og Nick Dougherty á 1. teig fyrir viðureignina.
Björgvin Sigurbergsson og Gary Wholstenholme á Ljunghusens golfvellinum fyrir leik þeirra í holukeppninni um 3. sætið.
Íslenska landsliðið 2001. F.v. Helgi B. Þórisson, Örn Ævar, Ottó Sigurðsson, Ragnar Ólafsson, aðstoðarliðsstjóri, (Staffan Johannsson var landsliðsþjálfari en Ísland vann m.a. Svíþjóð í 8 liða úrslitum), Ólafur Már Sigurðsson, Björgvin Sigurbergsson og Haraldur H. Heimisson. kylfingsmyndir/pket.
-