Fréttir

Perla Sól valin í Evrópulið ungmenna
Þriðjudagur 9. ágúst 2022 kl. 11:24

Perla Sól valin í Evrópulið ungmenna

„Þetta er mjög spennandi og verður skemmtileg reynsla,“ sagði Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi 2022, en hún var valin í úrvalslið meginlands Evrópu sem keppir gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands í Junior Vagliano liðakeppninni 2022. Mótið er árlegur viðburður þar sem að úrvalslið kvenna 16 ára og yngri keppir sín á milli – og eru aðeins kylfingar í fremstu röð á heimsvísu valdir í þetta mót.

Perla Sól sigraði nýverið á Evrópumóti stúlkna 16 ára og yngri – og er hún fyrsti íslenski kylfingurinn sem nær þeim árangri í stúlknaflokki.

Valnefnd á vegum EGA setti saman liðið – sem er þannig skipað: Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Johanna Axelsen (Danmörk), Anna Cañadó (Spánn), Andrea Revuelta (Spánn), Carla De Troia (Frakkland). Sigurvegarinn úr R&A áhugamannamótinu í stúlknaflokki fær einnig sæti í liðinu en mótið hófst í dag. Þeir keppendur sem nú þegar eru í liðinu hafa aldrei áður keppt á þessu móti.

Mótið fer fram dagana 26.-27. ágúst á Blairgowrie golfvellinum í Skotlandi

Andrea Revuelta er á meðal 100 efstu á heimslista áhugakylfinga og hún var á meðal 25 efstu á Evrópumóti einstaklinga.

Margir af leikmönnum í Solheimbikar liði Evrópu hafa verið í Junior Vagliano úrvalsliðinu. Má þar nefna stórstjörnurnar Georgia Hall, Charley Hull og Emily Pedersen.

Fyrst var keppt á þessu móti árið 2011 og er þetta í sjöunda sinn sem mótið fer fram. Frá og með þessu ári verður mótið haldið árlega en fram til þessa hefur það farið fram á tveggja ára fresti.

Keppnisfyrirkomulagið er með svipuðu sniði og í Solheimbikarnum og Ryderbikarnum í karlaflokki.

Fyrir hádegi eru leiknir þrír fjórmenningsleikir, og eftir hádegi eru 6 tvímenningsleikir. Alls eru 18 stig í pottinum og þarf 9 1/2 stig til að tryggja sigur.

Úrvalslið Evrópu hefur ávallt sigrað á þessu móti í þau sex skipti sem það hefur farið fram.