Fréttir

Ragnhildur upp um níu sæti í svæðiskeppninni
Ragnhildur Kristinsdóttir
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
þriðjudaginn 10. maí 2022 kl. 21:25

Ragnhildur upp um níu sæti í svæðiskeppninni

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, lék á 3 höggum yfir pari á öðrum hring NCAA Ann Arbor Regional í svæðiskeppni háskólagolfsins í Bandaríkjunum en leikið er á U-M vellinum í Ann Arbor í Michigan. Hún vann sig upp um níu sæti milli hringja og situr í 23.-26. sæti fyrir lokahringinn á morgun á 7 höggum yfir pari.

Ragnhildur, sem var valinn til að leika í einstaklingskeppni mótsins þrátt fyrir að skólalið hennar í Eastern Kentucky háskólanum, hafi ekki komist áfram í svæðiskeppnina, fékk tvo fugla og fimm skolla á hringnum.

Staðan í einstaklingskeppninni

Ragnhildur á rástíma á lokahringnum á morgun laust fyrir klukkan eitt á íslenskum tíma.

Skorkort Ragnhildar