Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory hitti gamlan risameistara á Birkdale
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 29. júní 2026 kl. 13:36

Rory hitti gamlan risameistara á Birkdale

Rory McIlroy einbeitir sér nú að fullu að Opna meistaramótinu í næsta mánuði á Royal Birkdale í Englandi. Sexfaldi risameistarinn sást æfa sig á Merseyside-strandvellinum nýlega, þar sem hann rakst á engan annan en Nick Faldo, sem einnig á sex risatitla. Faldo lék í sínu fyrsta Opna móti fyrir hálfri öld síðan en þrír risatitlar hans eru frá The OPEN.

„Mér hefur alltaf fundist Birkdale einn af bestu völlum sem halda Opna mótið, svo ég er spenntur að vera kominn aftur. Völlurinn er aðeins breyttur frá síðasta móti árið 2017. Nokkrar aðrar flatir og breytingar á nokkrum brautum.

Fimmta holan sem ég var að spila er allt öðruvísi. Hún er góð par-fjögur hola sem hægt er að slá inn á. Dálítil refsing ef maður hittir ekki. Ég veit ekki hvort vatnið er alveg í spilinu hægra megin en það eru margar stórar, djúpar glompur sem verja flötina.“

Hann bætti við: „Ég ætla að spila á Opna skoska mótinu (vikuna á undan) svo það verður gott að spila smá strandvallagolf fyrir OPNA mótið á Birkdale. Það er gott að koma hingað og spila snemma. Ég hef verið að reyna að gera það á öllum risamótum, sem er að virka fyrir mig. Í þessu tilfelli að venjast öðruvísi aðstæðum, strandvallagolfinu.“

Rory hefur einu sinni sigrað á Opna mótinu, árið 2014.

Nick Faldo endaði stutt spjall við Rory á því að bjóða honum ráðgjöf um Birkdale!