Spennandi golfferð til Prag
Gaman Ferðir hafa hafið innreið sína í golfið og bjóða nú ferð til Prag í Tékklandi í júní. Þessi ferðaskrifstofa er rekin af félögunum Þór Bæring Ólafssyni og Braga Hinriki Magnússyni, en þeir hafa verið í ferðabransanum í heilan áratug.
Þeir byrjuðu á sínum tíma með ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í fótbolta- og tónleikaferðum en hafa fært út kvíarnar og eru með fjölbreytt úrval af ferðum í dag fyrir hina ýmsu hópa.
Bragi segir að mikill metnaður væri lagður í það að bjóða fjölbreyttar og skemmtilegar golfferðir en í dag er t.d. hægt að velja um golfferðir til Alicante, Dublin, London og Tenerife, en fleiri áfangastaðir eru væntanlegir. Mikið sé lagt upp úr því að verðið sé sanngjarnt og að þjónustan sé til fyrirmyndar. Þá sé hægt að fá sértilboð fyrir hópa í golfferð á hina ýmsu staði.
Í ferðinni sem sett hefur verið upp til Prag verða spilaðir þrír glæsilegir golfvellir í nágrenni borgarinnar, Golf Karlstejn, Golf Konopiste og Golf Albatross. Þetta er sannkölluð lúxusferð en sjaldgæft er að golfferðir til Tékklands séu í boði.
Ferðin kostar 139.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi. Innifalið er flug, gisting í þrjár nætur með morgunverði, ferðir til og frá flugvelli, ferðir á milli golfvalla, einn hringur á hverjum af þeim þremur golfvöllum sem spilaðir eru og bjórsmökkun í míkró brugghúsi sem tengt er hótelinu.
Lagt er af stað frá Íslandi til Prag fimmtudaginn 11. júní klukkan 6:50. Flogið er heim á leið sunnudaginn 14. júní klukkan 22:35.
Á hótelinu sem gist er á er einn elsti veitingastaðurinn í Prag, stofnaður árið 1466 og frægt míkró brugghús ásamt bar með týpískum tékkneskum mat og Budvar bjór. Innifalið í verðinu er bjórsmökkun og ferð um brugghúsið. Það er frí nettenging á hótelinu. Herbergin eru falleg og mörg hver stórskemmtilega innréttuð. Hótelið er einnig vel staðsett og margir áhugaverðir staðir til að heimasækja í kring.
Heimasíður golfvallanna sem leikið verður á:
Golf Karlstein - http://www.karlstejn-golf.cz/en/home
Þessi völlur var hannaður af Kanadamönnunum Les Furber og Jim Eremko en þessir kappar hafa hannað yfir 70 golfvelli víðsvegar um heiminn, þeir frægustu eru Valderama á Spáni og Varadero á Kúbu. Völlurinn og útsýnið er gullfallegt.
Golf Konopiste - http://www.golf-konopiste.cz/index.php?lang=en47552
Þessi völlur er gullfallegur og býður uppá stórskemmtilegt golf þar sem mikið af sandgryfjum og vatnasvæðum eru til staðar til að góðlátlega stríða spilurum. Ein skemmtilegasta holan er 9. holan þar sem flötin er á lítilli eyju.
Golf Albatros - http://www.albatross.cz/en/
Þetta er 18 holu championship völlur sem var notaður á Evrópsku mótaröðinni í ágúst 2014. Hann hefur verið valinn golf 'resort' ársins á undanförnum árum og er almennt þekktur sem besti golfvöllurinn í Tékklandi. Það verður enginn svikinn af þessum velli.