Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Gunnlaugur í sigurliði alþjóðaliðsins í Arnold Palmer bikarnum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 8. júní 2025 kl. 09:33

Gunnlaugur í sigurliði alþjóðaliðsins í Arnold Palmer bikarnum

Gunnlaugur Árni Sveinsson fagnaði sigri með alþjóða úrvalsliði háskólakylfingina í Arnold Palmer bikarnum, sterkasta áhugamannamóti heims sem fram fór á Congaree golfvellinum í S-Karólínu og lauk í gær. Alþjóða liðið sigraði nokkuð örugglega 35-25.

Gunnlaugur lék í öllum fjórum viðureignunum og vann tvo vinninga. Fyrirkomulag mótsins var svipað og í Ryder bikarnum nema í þessu móti eru konur og karlar í liðunum. Leiknar voru 18 holur fyrsta daginn, 36 annan og 18 holur lokadaginn.

Hann lék með hinni sænsku Meja Örtengren í fyrstu umferð í fjórbolta og vann bandaríska parið 3/2.

Örninn 2025
Örninn 2025

Í annarri umferð lék Gulli með hinum norska Michael Alexander Mjaaseth en þeir mættu sterkasta pari Bandaríkjanna, þeim Jackson Kiovunog Carson Bacha en Koivun er annar á heimslista áhugamanna. Norðurlandaparið vann mangaðan sigur með tveimur holum.

Í seinni umferð annars keppnisdags lék Íslendingurnn með Maria José Marin frá Kólumbíu en hún er í 5. sæti á heimslista kvenna. Þau sigruðu bandaríska pari 3/1 og léku flott golf.

Í lokaumferðinni þar sem leikin var tvímenningur var Carson Bacha andstæðingur Gunnlaugs. Okkar maður varð að játa sig sigraðan í þeirri viðureign þrátt fyrir að hafa leikið gott golf, þrír undir pari dugði ekki því Bacha lék enn betur og vann 2/1.

Frábær árangur hjá Gulla en hann er fyrsti Íslendingurinn sem fær þátttökurétt í þessu móti.