Fréttir

Stelpurnar búnar að ljúka leik
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 6. október 2023 kl. 18:17

Stelpurnar búnar að ljúka leik

Íslenska stúlknalandsliðið lauk leik rétt í þessu í Kanada en þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Helga Signý Pálsdóttir, hafa verið að keppa á heimsmeistaramóti stúlkna síðan á miðvikudag. Lokadagurinn er á laugardag og stelpurnar fljúga svo heim á sunnudag.

Perla lék best stelpnanna í dag, var á pari og lauk leik á +8 og er í 21-24. sæti.

Helga Signý lék næstbest í dag, var á +12 í dag og í heildina á +38 og er í 65. sæti.

Pamela var á +14 í dag og í heildina á +33 og er í 63. sæti.

Hér er hægt að sjá skor allra keppenda ásamt skorkortum