Örninn sumar 2024
Örninn sumar 2024

Fréttir

Svona fór veðurhamurinn með Kálfatjarnarvöll
Fimmtudagur 7. september 2023 kl. 11:56

Svona fór veðurhamurinn með Kálfatjarnarvöll

Í óveðrinu um síðustu helgi með hárri sjávarstöðu fékk hluti golfvallarins á Kálfatjörn að finna fyrir því. Mikill þari og grjót skolaðist inn á teiga og flatir sem liggja næst sjó, þá sérstaklega þar sem aldan flæddi inn Búðarlónsgrandann og yfir lágan sjávarvarnargarðinn. Vaskur hópur stjórnar og kylfinga GVS komu saman og hreinsuðu svæðið með hjálp stórvirkra vinnuvéla. Margar hendur vinna létt verk.

Umfangið má sjá á myndum sem fylgja fréttinni.

Örninn sumar 2024
Örninn sumar 2024