Teighöggið á sextándu eftirminnilegast - segir Kristján Þór Íslandsmeistari
Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistari í golfi 2022 átti mörg eftirminnileg högg á golfárinu en það eftirminnilegasta var á 16. holu í Eyjum í lokahringnum á Íslandsmótinu en margir kylfingar hafa lent í vandræðum á þessari mögnuðu par 5 braut.
„Ég myndi telja að eftirminnilegasta höggið hjá mér í ár hafi verið teighöggið í lokahringnum á 16. teig í Íslandsmótinu í Eyjum. Við stóðum á teignum í góðar 15 mínútur að bíða og á meðan fóru minningar af hrakförum mínum og annarra síðustu ára að poppa upp í höfðinu á mér. Ég reyndi að hrista það af mér þannig að þegar það loksins kom að því að slá - þá tíaði ég boltann upp, tók eitt gott andvarp, eina æfingasveiflu og horfði inn í dalinn á þann stað sem ég ætlaði að slá. Stillti mér svo upp og hitti hann vel, horfði á boltann starta og línan var frábær, beygði mig niður og tók upp tíið og horfði ekki meira á eftir honum, seinna meir frétti ég að boltinn hafi byrjað að „draw-a“ og var síðan frekar tæpur á því að enda út fyrir vallarmörk en höggið geggjað engu að síður.
Markmiðin fyrir næsta ár eru að komast í form fyrir haustið þvi stefnan er sett á úrtökumót svo að það er í rauninni það eina sem fókusinn er á, ég mun spila á flestum mótunum á mótaröðinni til að vera í einhvers konar keppnisformi þegar að á hólminn er komið næsta haust,“ segir Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistari í golfi 2022.


