Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Frábær frammistaða hjá Huldu í S-Afríku - höggi frá efsta sæti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 13. mars 2026 kl. 11:21

Frábær frammistaða hjá Huldu í S-Afríku - höggi frá efsta sæti

Hulda Clara Gestsdóttir lék frábært golf á Jabra Ladies Classic mótinu á Sunshine atvinnumannamótaröðinni í Jóhannesarborg í Suður-Afríku sem lauk í dag. Hulda endaði í 4. sæti á átta undir pari, höggi á eftir þremur keppendum.

Hulda lék feyki vel á lokahringnum. Hún endaði hann á 5 undir pari og fékk skolla á 18. holu sem var hennar eina tapaða högg dagsins.. Par þar hefði fleytt henni í bráðabana um sigurinn. Engu að síður frábær frammistaða hjá henni en Hulda er að hefja sinn atvinnumannaferil.

Hulda lék hringina þrjá á 69-72-67.

Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 24. sæti á tveimur yfir pari.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn en hún lék fyrstu tvo hringina á 76-77, átta yfir pari.

Lokastaðan