Video: Pebble Beach einn besti og frægasti völlur í heimi
Pebble Beach völlurinn er einn frægasti golfvöllur í heimi og skildi engan undra. Völlurinn er frábærlega hannaður og gífurlega erfiður. Hann hefur verið lengdur sérstaklega fyrir Opna bandaríska meistaramótið en síðast var leikið á vellinum í því móti árið 2000.
Þá rassskellti Tiger Woods völlinn með að leika á tólf höggum undir pari og verða 15 höggum á undan næsta kylfingi sem er stærsti sigur kylfings í risamóti frá upphafi. Völlurinn var opnaður árið 1919 og árið 2001 var hann valinn sá besti í heimi af tímaritinu Golf Digest.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá umfjöllun um þennan stórglæsilega golfvöll en golfáhugamönnum til fróðleiks þá kostar um 65 þús. krónur að fá að leika einn hring á vellinum. Hér má sjá kynningu á hverri holu fyrir sig á vellinum.
Myndir/golfsupport.nl



