Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Sunnudagur 2. ágúst 2009 kl. 20:37

Wie valin í Solheim-lið Bandaríkjanna - Lið Evrópu einnig klárt

Michelle Wie varð að ósk sinni þegar Beth Daniels, fyrirliði Solheim-liðs Bandaríkjanna valdi hana í liðið fyrir mótið á næsta ári. Þessi 19 ára ofurstjarna hefur staðið sig með ágætum á sínu fyrsta ári sem fullgildur meðlimur á LPGA mótaröðinni og ellefta sætið á Opna breska mótinu sem lauk í dag var nóg til að sannfæra Daniels um að veita henni annað af tveimur sætum sem hún gat úthlutað óháð stigalistanum. Hitt sætið fékk Juli Inkster.

Alison Nicholas, fyrirliði Evrópuliðsins, valdi þrjár konur, þær Becky Brewerton, Önnu Nordqvist og Janice Moodie.

Í liði Bandaríkjanna eru eftirtaldar konur:
Paula Creamer, Cristie Kerr, Angela Stanford, Kristy McPherson, Nicole Castrale, Christina Kim, Brittany Lang, Morgan Pressel, Brittany Lincicome, Michelle Wie, Juli Inkster og Natalie Gulbis. Lang, McPherson og Wie hafa aldrei tekið þátt á Solheim-Cup áður.

Í Evrópuliðinu eru eftirtaldar:
Gwladys Nocera, Tania Elosegui, Diana Luna, Laura Davies og Sophie Gustafson sem komu af stigalista Evrópumótaraðarinnar og svo Suzann Pettersen, Helen Alfredsson, Catriona Matthew og Maria Hjorth vegna stöðu sinnar á heimslistanum, auk Brewerton, Nordqvist og Moodie. Elosegui, Luna og Nordqvist hafa aldrei keppt á Solheim áður.
 
Þess má geta að Helen Alfredsson verður fyrsta konan til að keppa á Solheim sem liðsmaður eftir að hafa verið fyrirliði eins og hún var árið 2007.
Örninn 2025
Örninn 2025