Fréttir

Woods keyrði á 135-140 kílómetra hraða
Tiger Woods.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 7. apríl 2021 kl. 21:20

Woods keyrði á 135-140 kílómetra hraða

Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða þegar hann lenti í umtöluðu bílslysi í Kaliforníu í febrúar. Þessu greindi lögreglustjórinn í Los Angeles frá og sagði jafnframt ekkert benda til þess að Woods hafi verið undir áhrifum áfengis eða lyfja.

Woods var á 135-140 kílómetra hraða á klukkustund þegar hann ók út af veginum. Hámarkshraði á slysstaðnum er hins vegar rúmir 72 kílómetrar á klukkustund að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Lögreglustjórinn segir hraðaksturinn meginorsök slyssins.

Aksturstölva bílsins sýndi að Woods snerti aldrei bremsuna áður en hann ók út af veginum. Lögreglustjórinn segir að það kunni að benda til þess að kylfingurinn hafi stigið á rangan fetil. Woods verður þó hvorki sektaður né kærður þar sem engin vitni urðu að óhappinu.

Woods slasaðist alvarlega í slysinu og þurftu sjúkraliðar og slökkviliðsmenn að losa hann úr flaki bifreiðarinnar. Hann var skorinn upp vegna opins beinbrots á fótlegg. Þá slasaðist hann einnig á fæti og ökkla.

Woods var útskrifaður af sjúkrahúsi fyrr í þessum mánuði. Ljóst er að hann verður frá keppni í lengri tíma en ferill hans jafnvel fyrir slysið var á lokametrunum vegna þrálátra bakmeiðsla hans.