Fréttir

Háskólagolfið: Jóhannes á parinu í Louisiana
Jóhannes Guðmundsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 18. febrúar 2020 kl. 23:05

Háskólagolfið: Jóhannes á parinu í Louisiana

Jóhannes Guðmundsson GR og liðsfélagar hans í Stephen F. Austin voru á meðal keppenda á La Tour Intercollegiate mótinu sem fór fram í bandaríska háskólagolfinu dagana 17.-18. febrúar.

Mótið var haldið í Mathews í Louisiana fylki Bandaríkjanna og tóku 12 lið þátt.

Jóhannes lék fínt golf í mótinu og endaði hringina þrjá samtals á pari vallarins. Spilamennska hann var nokkuð sveiflukennd en lék á 68, 78 og 70 höggum. Besta hringinn átti hann á fyrsta keppnisdegi en þá lék hann á fjórum höggum undir pari og tapaði ekki höggi.

Lið Stephen F. Austin endaði í 5. sæti í liðakeppninni af 12 liðum á 25 höggum undir pari í heildina.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.

Næsta mót hjá Jóhannesi og liðsfélögum hans fer fram dagana 24.-25. febrúar.