Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

15 milljóna kr. hagnaður hjá GKG – stjórnin endurkjörin
Frá Leirdalsvelli.
Þriðjudagur 3. desember 2013 kl. 14:12

15 milljóna kr. hagnaður hjá GKG – stjórnin endurkjörin

Rekstrarhagnaður var hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar þrátt fyrir að talsverður samdráttur hafi verið í vallargjöldum og boltasölu hjá GKG á síðasta rekstrarári.

Rekstrarhagnaður var hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar þrátt fyrir að talsverður samdráttur hafi verið í vallargjöldum og boltasölu hjá GKG á síðasta rekstrarári. Aukning á fyrirtækjasamningum og auknar tekjur af golfmótum gerðu gæfumuninn í rekstri klúbbsins. Hagnaður ársins var um 15,2 milljónir kr. Aðalfundur GKG fór fram s.l. fimmtudag og voru engar breytingar á stjórn klúbbsins.

Ársreikningurinn í heild sinni: 

GKG velti rúmum 207 milljónum á starfsárinu.  17% samdráttur var í teiggjöldum og 20% samdráttur í boltasölu á æfingasvæði en 30% aukning á fyrirtækjasamningum og golfmótum. Rekstrarhagnaður klúbbsins var því 15,2 milljónir.

Engar breytingar urðu á stjórn formaðurinn var endurkjörinn ásamt þeim þrem stjórnarliðum og varamönnum sem voru í kjöri. Stjórn GKG fyrir starfsárið 2014 skipa því:

Guðmundur Oddsson,formaður
Áslaug Sigurðardóttir, meðstjórnandi
Kristinn Jörundsson, meðstjórnandi
Símon Kristjánsson,meðstjórandi
Gunnar Jónsson,meðstjórnandi
Bergþóra Sigmundsdóttir,meðstjórnandi
Gunnar Páll Þórisson,meðstjórnandi
Ragnheiður Stephensen,varamaður
Einar Gunnar Guðmundsson,varamaður
Jón K. Baldursson,varamaður

Stjórnin mun svo skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir kjör.

Mikil fækkun var í spiluðum hringjum á árinu, árið 2012 voru spilaðir rúmir 29 þúsund hringir á Leirdalnum en síðasta ár voru hringirnir tæpir 25 þúsund sem er 14% samdráttur. Á mýrinni voru spilaðir rúmir 25 þúsund hringir en árinu áður voru þeir rúmir 30 þúsund sem er um 18% samdráttur. Ástæðan fyrir samdrættinum er fyrst og síðast sú að á meðan 2012 var veðurfarslega eitt það besta í manna minnum, þá einkenndist síðasta ár af lægðarhraðlestum.

Formaðurinn fór yfir mál undanfarinna ára sem er bygging klúbbhúss, vonir manna eru að glæðast og eru allar líkur á að hönnunarvinna hefjist fyrir alvöru á árinu og vonir manna standa til að gerður verði samstarfssamningur við sveitafélögin á 20 ára afmæli klúbbsins sem er 24 mars á næsta ári.