Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sigraði á PGA móti 30 mánuðum eftir heilaaðgerð
Mánudagur 30. mars 2026 kl. 17:54

Sigraði á PGA móti 30 mánuðum eftir heilaaðgerð

Gary Woodland sigraði á Texas Children's Houston Open á PGA mótaröðinni á sunnudaginn. Þetta var tilfinningaþrungin stund sem virtist svo ólíkleg fyrir 30 mánuðum þegar hann fór í heilaaðgerð, og jafnvel fyrir tveimur vikum þegar hann opnaði sig um ógnvekjandi baráttu sína við áfallastreituröskun.

Woodland leit betur út en nokkru sinni fyrr í Memorial Park, fór inn í lokahringinn með eins höggs forystu á Danann Nicolai Højgaard og jók hana í sjö högg áður en hann sigldi sigrinum í höfn með bikar sem fannst jafn stór og sigur hans á Opna bandaríska meistaramótinu á Pebble Beach árið 2019.

Hann lauk leik á 67 höggum, eða þremur höggum undir pari, og sigraði með fimm högga mun en  Højgaard varð annar. Áhorfendur þögnuðu í miðjum fagnaðarlátum svo Woodland gæti rúllað boltanum í holu fyrir pari úr fimm feta færi. Hann teygði báða handleggi, andaði frá sér og horfði til himins áður en tárin byrjuðu að streyma.

„Við keppum í einstaklingsíþrótt hérna úti, en ég var ekki einn í dag,“ sagði Woodland, með titring í röddinni af tilfinningum. „Ég vona að allir sem glíma við eitthvað sjái mig og gefist ekki upp. Haldið bara áfram að berjast,“ sagði hann í viðtali við pgatour.com

Woodland hefur verið vinsæll og öflugur leikmaður síðan hann yfirgaf háskólaferil í tveimur íþróttum og gekk til liðs við PGA TOUR. En hann byrjaði að eiga í erfiðleikum árið 2023, aðeins til að komast að því að hann var með mein í þeim hluta heilans sem olli tilefnislausum ótta um að hann væri að deyja.

Aðgerð í september 2023, þar sem skorið var gat á stærð við hafnabolta á hlið höfuðs hans, fjarlægði stóran hluta meinsins. Endurkoma hans í janúar 2024 leit vel út á yfirborðinu, sérstaklega í fyrra þegar hann lenti í öðru sæti á Texas Children's mótinu.

En hann þjáðist mikið af áfallastreituröskun, og hljóp einu sinni á færanlegt salerni til að brotna niður í tárum þegar tilfinningarnar yfirbuguðu hann. Fyrir tveimur vikum ákvað hann að deila baráttu sinni í viðtali við Golf Channel.

„Ég kann að meta þennan kærleika og stuðning. En innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja, og mér líður eins og ég lifi í lygi,“ sagði hann í viðtalinu. „Ég vil láta drauma mína rætast og ná árangri hérna úti. En ég vil líka hjálpa fólki. Ég geri mér grein fyrir því núna að ég verð að hjálpa sjálfum mér fyrst.“

Hann sagði í vikunni að það að opna sig opinberlega hafi látið honum líða „1.000 pundum léttari“. Hann á enn sín augnablik, eins og þegar aðdáendur komu of nálægt honum á níunda teig á föstudaginn, sem gerði hann ofurvakandi. Hann sagði að hann hefði verið grátandi í skorkortaskýlinu eftir annan hringinn áður en hann náði jafnvægi og hélt áfram með rútínuna sína.

„Að koma fram, tala og biðja um hjálp, ég gerði það ekki í fyrra. Ég gerði það ekki snemma á þessu ári,“ sagði Woodland. „Ég er í baráttu. Með þeim kærleika og stuðningi sem ég hef í kringum mig, hef ég von.“

Líkamlegur styrkur hans yfirgaf hann svo sannarlega ekki. Upphafshöggin hjá Woodland náðu mest 315 km/klst og enn meira sláandi var mjúka sveiflan.

Hann lauk leik á 21 höggi undir pari, samtals 259 höggum, og var þetta fyrsti sigur hans síðan á Opna bandaríska meistaramótinu og sá fimmti á ferlinum. Þessum fylgdi stór bónus — hann tryggði sér keppnisrétt á Masters-mótinu eftir tvær vikur.

Højgaard féll aftur úr baráttunni um sigurinn með tvöföldum skolla á sjöundu holu, sem er par-5 hola. Hann lauk leik á 71 höggi og fékk sárabót. Hann tryggði sér sæti meðal 50 efstu á heimslistanum — fór úr 47. sæti í 36. sæti — og fékk þar með boð á Masters-mótið.

Højgaard og ríkjandi meistari Min Woo Lee (67) ákváðu að halda aftur af sér á lokabrautinni á leið sinni að 18. flötinni til að gefa Woodland sviðsljósið, látbragð sem sjaldan sést utan risamóta. Þvílík virðing hjá þeim félögum.

„Okkur fannst viðeigandi að leyfa honum að eiga sína stund,“ sagði Højgaard. „Þetta var frekar flott stund fyrir Gary og það var flott að sjá. Ég er virkilega ánægður fyrir hans hönd.“