Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Góður árangur hjá Andreu í S-Afríku
Andrea lék gott golf í S-Afríku.
Sunnudagur 29. mars 2026 kl. 11:08

Góður árangur hjá Andreu í S-Afríku

Andrea Bergsdóttir náði góðum árangri í ABSA Ladies Invitational mótinu á Royal Johannesburg vellinum sem lauk í gær. Mótið var hluti af Sunshine mótaröðinni í S-Afríku. Andrea endaði í 14. sæti á fjórum höggum undir pari. Hulda Clara Gestsdóttir var einnig meðal þátttakenda en var þremur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Andrea lék fyrsta hringinn á tveimur yfir pari, 74 höggum, en lék mun betur næstu tvo hringi sem hún endaði á sex undir pari, 69-69.

Þetta var besti árangur Andreu í fjórum mótum sem hún tók þátt í, í S-Afríku en hún mun brátt hefja leik á LET Access mótaröðinni sem er næst sterkasta mótaröð kvenna í Evrópu. Hún lék þar í fyrsta sinn í fyrra og stóð sig mjög vel.

Hulda Clara Gestsdóttir er á sínum upphafsmetrum sem atvinnukylfingur en hún lék einnig á fjórum mótum en áður höfum við greint frá árangri Guðrúnar B. Björgvinsdóttur.

Hulda endaði í 4. sæti, 25. og 33. sæti en í þessu síðasta móti hennar komst hún ekki í áfram.