Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Adam Scott  og eiginkona hans eignuðust sitt fyrsta barn
Adam Scott.
Þriðjudagur 17. febrúar 2015 kl. 13:09

Adam Scott og eiginkona hans eignuðust sitt fyrsta barn

Adam Scott og eiginkona hans Marie Kojzar eignuðust sitt fyrsta barn um síðustu helgi. Hjónin, sem giftu sig s.l. vor, eignuðust dóttur og heilsast móður og barni vel. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umboðsmanni ástralska kylfingsins.

Barnið, sem hefur fengið nafnið Bo Vera Scott ,fæddist í Queensland í Ástralíu . Adam Scott, sem er 34 ára gamall, hefur ekki keppt á PGA móti frá því í desember á síðasta ári.

Örninn 2025
Örninn 2025

Það er búist við að Scott leiki á sínu fyrsta móti þegar heimsmótaröðin fer fram á Doral vellinum 5.-8. mars.