Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Hola í höggi á fyrsta Mustad-texas móti Golfklúbbs Grindavíkur
Sigurður Óli Þórleifsson, eigandi Mustad audioline á Íslandi, til vinstri og annar sigurvegaranna, Ástþór Arnar Ástþórsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
þriðjudaginn 3. júní 2025 kl. 07:00

Hola í höggi á fyrsta Mustad-texas móti Golfklúbbs Grindavíkur

Hefð fyrir texas-móti á Sjóaranum síkáta í Grindavík, mótið er komið til að vera segir eigandi Mustad á Íslandi, Sigurður Óli Þórleifsson.

Hefð er fyrir Texas scramble móti á laugardegi um Sjómannahelgina í Grindavík en sökum jarðhræringanna var ekkert slíkt mót haldið í fyrra. Félagarnir hjá Mustad audioline á Íslandi, eigandinn Sigurður Óli Þórleifsson og starfsmaður hans, Haukur Guðberg Einarsson, ákváðu að nýta tækifærið og var blásið til leiks á laugardaginn í blíðunni í Grindavík.

Sigurvegarar urðu Ástþór Arnar Ástþórsson og Guðmundur Valur Sigurðsson en mesta athygli vakti draumahögg kylfingsins Jóns Gauta Dagbjartssonar. Ekki nóg með að Gauti hafi farið holu í höggi, heldur var þetta í annað skipti á golfferlinum sem hann nær þessu afreki sem alla kylfinga dreymir um. Tekið skal skýrt fram að Jón Gauti er alls ekki góður kylfingur, er með u.þ.b. 20 í forgjöf.

Örninn 2025
Örninn 2025

Í spilaranum er viðtal við eiganda Mustad, Sigurð Óla, og herra Hole In One, Jón Gauta.

Uppselt varð í mótið á nokkrum mínútum.

Sigurður Óli Þórleifsson og hr. Hola í höggi, Jón Gauti Dagbjartsson

Húsatóftavöllur...

...skartaði sínu fegurasta...

... þennan laugardag um Sjómannahelgina og hefur sjaldan litið eins vel út.
Hreinn Gunnar Guðmunsson, Teitur Örlygsson og Gylfi Björgvin Guðmundsson. Bæði lið stóðu sig afskaplega illa en voru þó ekki á meðal neðstu liða í mótinu.

Sigurður Óli: Jón Gauti: