Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Aðeins þrír kylfingar á undir pari - Rory komst áfram
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 14. júní 2025 kl. 08:33

Aðeins þrír kylfingar á undir pari - Rory komst áfram

Aðeins þrír kylfingar eru undir pari á Opna bandaríska mótinu á Oakmont vellinum í Pensilvaníu. Það sem vakti jafnvel meiri athygli á öðrum degi var golfhringurinn hjá Rory McIlroy en hann náði í gegnum niðurskurðinn með frábæru golfi síðustu fimmtán holurnar.

Rory var fjóra yfir pari eftir fyrsta hringinn og fék svo tvöfaldan skolla á tveimur af fyrstu þremur brautunum eftir vandræði í glompum. En með hnefann nánast á lofti tókst honum að leika næstu fimmtán holur á tveimur undir pari, hann þurfti par á síðustu holunni en sló lengsta upphafshögg mótsins á brautinni og kláraði hana með fugli. Hann er níu höggum á eftir forystusauðnum Sam Burns sem lék frábært golf, fimm undir. Höggi á eftir honum er forystusauður fyrsta dagsins, JJ Spaun á -2. Norðmaðurinn Victor Hovland er þriðji á -1.

Besti kylfingur heims, Scottie Scheffler hefur verið í basli en er samt bara sjö höggum frá efsta sæti. Það má því alls ekki afskrá hann þó hann hafi alls ekki náð að sýna sitt besta á erfiðum golfvelli. Hann fjórpúttaði einu sinni og gerði nokkur mistök sem sjást afar sjaldan hjá kappanum.

Örninn 2025
Örninn 2025

Það er því spennandi seinni helmingur mótsins framundan. Það getur allt gerst.

Það eru nokkur stór nöfn í hópi þeirra sem komust ekki í gegnum niðurskurðinn, sá elsti í hópnum og fyrrum risameistari, Phil Mickelson, var höggi frá því en líka meistarinn frá 2023, Wyndham Clarke og meistarinn frá því í fyrra, Bryson DeChambeau, hann var þrjú högg frá því.

Staðan eftir 36 holur.

Hér má sjá fleiri sem misstu „köttið“.

• Ludvig Åberg +8

• Patrick Cantlay +8

• Min Woo Lee +9

• Tommy Fleetwood +9

• Akshay Bhatia +10

• Gary Woodland +10

• Sepp Straka +11

• Justin Thomas +12

• Justin Rose +14

• Shane Lowry +17

Svíinn Aberg var höggi frá niðurskurðinum.