Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Andrea í toppmálum aðra vikuna í röð
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 9. júní 2025 kl. 13:04

Andrea í toppmálum aðra vikuna í röð

Andrea Bergsdóttir stóð sig frábærlega á öðru mótinu í röð á LET Access mótaröðinni, næst sterkustu í Evrópu. Hún endaði í 3. sæti á Montauban mótinu í Frakklandi um síðustu helgi.

Andrea var einn undir pari eftir tvo hringi af þremur en fór mikinn í lokahringnum sem hún lék á 67 höggum en aðeins ein önnur kona var á því skori á lokahringnum. Hún var á pari eftir tólf holur en lék síðustu sjö holurnar á sex undir pari, 30 höggum. Þær Reina Fujikawa og Amalie Let Nissen enduðu höggi á undan henni. Andrea endaði í 4. sæti helgina á undan. Hún fékk um hálfa milljón í verðlaunafé og hefur rokið upp á stigalistanum, er nú í 9. sæti.

Ragnhildur Kristinsdóttir var ekki meðal keppenda en hún er í 39. sæti á stigalistanum. Hún keppir á móti vikunnar en Andrea hvílir í þessari viku.

Örninn 2025
Örninn 2025

Lokastaðan.