Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Andrea og Ragnhildur við toppinn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 30. maí 2025 kl. 14:24

Andrea og Ragnhildur við toppinn

Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir léku flott golf á fyrsta degi á Sandtander á LET Access mótaröðinni sem hófst á fimmtudag.

Andrea lék á fjórum undir pari, 68 höggum og Ragnhildur höggi á eftir, 69 höggum, þremur undir.

Andrea lék jafnt og gott golf og fékk fimm fugla og aðeins einn skolla. Ragnhildur byrjaði hringinn með látum og fékk örn á fyrstu holu og tvo fugla á 3. og 7. holu og annan fugl á 11. holu. Tveir skollar komu á 10. og 17. holu. Flott golf hjá stelpunum.

Örninn 2025
Örninn 2025

Uppfært:

Andrea lék annan hringinn á 69 höggum og Ragnhildur á 74. Andrea er við toppinn og á möguleik á að vinna sitt fyrsta mót á LET Access.

Staðan