Fréttir

Andrea sigraði og fór holu í höggi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 5. febrúar 2024 kl. 17:21

Andrea sigraði og fór holu í höggi

Andrea Bergsdóttir sigraði á sterku háskólamóti í Bandaríkjunum 2.-3. febrúar og gerði sér lítið fyrir og fór einnig holu í höggi í mótinu.

Í mótinu tók tólf háskólar þátt en þar fór fram á Guadalajara Country Club í Mexíkó. Keppendur léku af teigum sem voru um 5.800 metrar.

Íslenska landsliðskonan leikur með Colorado State háskólaliðinu og er þetta fyrsti sigur hennar á háskólamóti að því er fram kemur á golf.is. Andrea lék hringina þrjá á 212 höggum, 4 höggum undir pari vallar (71-70-71).

Andrea hefur leikið með íslenska A-landsliðinu á undanförnum misserum en hún er alin upp hjá fjölskyldu sinni sem hefur búið í Svíþjóð. Andrea keppir Hills golfklúbbinn í Svíþjóð en fyrir GKG hér á landi.

Í liðakeppninni endaði Colorado State liðið í 5. sæti af alls 12 liðum.

Lokastaðan er hér: