Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Arnór Ingi með bestu sveiflu landsins að mati Nökkva
Þriðjudagur 27. desember 2011 kl. 11:02

Arnór Ingi með bestu sveiflu landsins að mati Nökkva

Nökkvi Gunnarsson úr Nesklúbbnum er kylfingur sem á góðum degi getur verið einn besti kylfingur landsins. Hann fann sig ekki á Eimskipsmótaröðinni í sumar en gerði sér lítið fyrir og vann marga af bestu kylfingum landsins í Einvíginu á Nesinu sem fram fór í byrjun ágúst. Mótið fór einmitt fram á afmælisdegi Nökkva sem var ákaft fagnað af fjölda áhorfenda á Nesvellinum. Einnig vann Nökkvi nýlega sterkt atvinnumannamót sem fram fór í Flórída á OGA mótaröðinni. Þessi 35 ára kylfingur starfar sem golfkennari hjá Nesklúbbnum. Golf á Íslandi bað hann að gera upp liðið golfsumar og að mati Nökkva kom Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR mest á óvart í sumar.

Örninn 2025
Örninn 2025

Hvernig metur þú frammistöðu þína golfsumarið 2011?
Ég er nokkuð sáttur. Ég er alltaf að bæta mig.

Hver voru helstu markmiðin þín í sumar og náðir þú þeim?
Helstu markmiðin voru bara að gera mitt besta og hafa gaman af því að spila golf.

Í hvaða þætti golfsins hefur þú mest bætt þig á þessu tímabili?
Sveiflan er alltaf að batna, ég er að færast nær innri hringnum.

Hver var hápunktur sumarsins og hver voru mestu vonbrigðin?
Hápunkturinn var sigurinn í Einvíginu á Nesinu. Vonbrigðin voru Íslandsmótið í höggleik.

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart í sumar?
Arnór Ingi hefur alltaf verið góður en náði að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli. Hann er að vinna með réttu hlutina í sveiflunni og er algjörlega kominn á innri hringinn. Ég spái því að hann landi fleiri stórum titlum á næsta ári. Hann er alla vega með bestu sveifluna af íslenskum kylfingum.

Hefur þú bætt þig sem kylfingur eftir að þú fórst að kenna golf í fullu starfi?
Já, ég hef náð að bæta mig töluvert.

Lýstu besta golfhögginu sem þú slóst í sumar:
Það var lobhögg fyrir aftan fyrstu flötina á Nesvellinum á lokadeginum í Meistaramóti Nesklúbbsins. Höggið sló ég með fullri sveiflu, boltinn fór um 4 metra upp í loftið og 2 metra áfram. Stoppaði á punktinum innan við fet frá holu.

Nökkvi á 30 sekúndum:
Klúbbur: NK
Aldur: 35
Forgjöf: 1
Leyndur hæfileiki: Blístra betur en flestir aðrir, ótrúlega lagviss.
Besti hringur: 62 högg á Chi Chi Rodriguez vellinum
Hola í höggi: Tvisvar
Uppáhalds kylfingur: Tom Pernice Jr.
Draumaráshópurinn: Jim Hardy, Chris O‘Connell og Chi Chi Rodriguez
Uppáhalds kylfa: Nýi bumbupútterinn minn