Aron Snær missti flugið í dag
Lék á 2 höggum yfir pari og er samtals á 3 höggum undir pari
Aron Snær Júlíusson, GKG, missti flugið á öðrum hring Rewell Elisefarm Challenge á Ecco-mótaröðinni (Nordic Golf League) í dag. Aron Snær kom í hús á 74 höggum eða á 2 höggum yfir pari Elisefarm vallarins í Svíþjóð. Hann er á samtals 3 höggum undir pari að loknum hringjunum tveimur og situr í 6.-11. sæti sem stendur. Enn eiga margir kylfingar eftir að ljúka leik.
Axel Bóasson, GK, nýtti tækifærið og náði tveggja högga forskoti á mótinu.
Aron var ræstur út af 10. teig í dag. Hann lék fyrri níu holur sínar á 37 höggum eða á 1 höggi yfir pari og seinni níu holur sínar einnig. Aron fékk tvo fugla og fjóra skolla á hringnum.
Sex íslenskir kylfingar leika á mótinu í Svíþjóð. Aron Bergsson, sem leikur fyrir Hills Golfklúbbinn í Svíþjóð, Andri Þór Björnsson, GR, Böðvar Bragi Pálsson, GR og Bjarki Pétursson, GKG eru að leika sínar fyrri níu holur á þessari stundu.
Kylfingur fylgist vel með okkar mönnum á mótinu.