Ríflega 1,4 milljónir söfnuðust í Styrktarmótinu fyrir Grensás spítala
Styrktarmót fyrir Grensás spítala fór fram hjá GKG í vikunni en markmiðið var að safna fyrir æfingatækjum sem nýtast vel við endurhæfingu skjólstæðinga Grensás, segir í frétt frá Golfkúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Þar segir líka: „Margir þekkja eflaust til fjöldskyldumeðlima eða vina sem hafa notið góðs af því góða starfi sem unnið er hjá Grensás. Við í GKG eigum einmitt þrjú sem standa okkur nálægt, en Guðrún Helgadóttir (Guðrún á skrifstofunni), Björn hinn norski Haaker og Baldvina Snælaugsdóttir (Baddý) eru skjólstæðingar Grensás um þessar mundir.
Þetta var sannkallaður gleðidagur og söfnuðust rúmlega 1.400.000 krónur. Fullt var í mótið, 144 keppendur sem léku 9 holur á Mýrinni við frábærar aðstæður í sól og blíðu.
Baddý fær sérstakar þakkir fyrir að safna í verðlaunapottinn en heildarverðmæti vinninga nam um 750.000 kr. Sjá lista yfir samstarfsaðila mótsins hér fyrir neðan.
Valgerður Falk, skjólstæðingur Grensás, var einnig burðarás í undirbúningi mótsins og tók myndir af öllum keppendum í upphafi leiks og einnig í verðlaunaafhendingunni sem fór fram um kvöldið í troðfullum veitingasal GKG. Einnig þökkum við öldunga- og kvennanefnd GKG fyrir þeirra framlag í undirbúningi mótsins.“
Hér er hægt að skoða myndirnar.
Úrslit mótsins eru hér fyrir neðan:
Karlaflokkur – Punktakeppni
1 Sverrir Davíð Hauksson 21
2 Sigurpáll Jóhannsson 21
3 Þorsteinn Sæþór Guðmundsson 20
4 Einar Ísfeld Ríkharðsson 20
5 Hilmar Þór Kárason 20
Kvennaflokkur – Punktakeppni
1 Ingibjörg Magnúsdóttir 26
2 Jónína Hallgrímsdóttir 24
3 Guðbjörg Guðlaugsdóttir 23
4 Hanna María Hjálmtýsdóttir 22
5 Helga Sigríður Sigurgeirsdóttir 22
Besta skor í höggleik án forgjafar
Karlar: Úlfar Jónsson 35 högg
Konur: María Málfríður Guðnadóttir 39 högg
Nándarverðlaun
2. hola: Regína Ósk Óskarsdóttir 141 cm
4. hola: Jón Einarsson 783 cm
9. hola: Jóhanna Ríkey 35 cm
Lengsta dræv á 5. braut:
Konur: Hrefna Lind
Karlar: Gunnar Gunnarsson
Fuglastríðið – Allir keppendur sem fengu fugl fóru í pott þar sem dregið var um rjúpu listaverk frá Sólheimum.
Helga Sigurgeirsdóttir
Irena Ásdís Óskarsdóttir



