Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Enginn Íslendinganna komust áfram á lokaúrtökumótið
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 1. nóvember 2026 kl. 20:08

Enginn Íslendinganna komust áfram á lokaúrtökumótið

Enginn íslensku kylfinganna á 2. stigi úrtökumótanna komst inn á 3. stigið, lokamótið. Sigurður Arnar Garðarsson var í dauðafæri, var í 15. sæti eftir 3 hringi af 4 en lék ekki vel á lokahringnum og Dagbjartur Sigurbrandsson var fjórum höggum frá topp 20.

Það var mikið undir hjá Sigurði í lokahringnum, góður möguleiki á sæti í lokaúrtökumótinu fyrir DP mótaröðina. Líklegt var að skor á pari eða betra myndi halda honum í topp 20. Hann byrjaði á skolla á fyrstu holu en svaraði með fugli á þeirri þirðju. Síðan tóku við skollar á 5. og 6. holu, fugli á 7. en síðan tvöfaldur skoli á 8. holu. Frekar óstöðugt golf hjá Sigga. Hann lék fyrri níu á þremur yfir og ljóst að hann þurfti að leika síðustu níu mjög vel. Það tókst ekki en hann kláraði þær á pari, þrjá yfir í lokahrinngum og hann endaði á -4 og jafn í 33. sæti. Jafnir í 20. sæti voru fjórum höggum betri. Sigurður Arnar lék á Fontanals vellinum.

Dagbjartur átti þokkalega möguleika fyrir lokahringinn en ljóst að hann þurfti að spila nokkra undir pari í harðri keppni. Hann lék lokahringinn á höggi undir pari eftir að hafa byrjað á tveimur skollum en hann fékk þrjá fugla eftir það. Samtals átta undir í heildina og það dugði til að vera jafn í 34. sæti. Mjög góð spilamennska en dugði ekki til og það sýnir styrkleikann í þessu dæmi þar sem um eitt þúsund kylfingar hefja leik í fyrsta stiginu. Í lokastigið mæta um 150 kylfingar, um helmingurinn úr úrtökumótum.

Ragnar Garðarsson var þriðji keppandi Íslendina á 2. stiginu og lék á Isla Canaela eins og Dagbjartur. Hann byrjaði vel í fyrsta hring en náði sér ekki nóg vel á strik í næstu tveimur en hann lék lokahringinn á pari og endaði á +3 í heildina og jafn í 71. sæti.

Síðast komst íslenskur kylfingur á lokastigið árið 2023, Haraldur Franklín. Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði því 2022 og endaði í topp 25 og hann vann sér ágætan þátttökurétt á DP mótaröðina 2024.

Lokastaðan á Isla Canela.

Lokastaðan á Fontanals.