Úrtökumótin: Góð byrjun hjá Dagbjarti og Ragnari
Þrír íslenskir kylfingar hófu leik í dag á 2. stigi úrtökumótanna fyrir DP mótaröðina en leikið er á Spáni. Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Garðarsson byrjuðu vel en það gekk ekki eins vel hjá Sigurð Arnari Garðarssyni.
Dagbjartur og Ragnar leika á Isla Canela Links vellinum við Huelva en Sigurður Arnar, bróðir Ragnars, keppir á Fontanals í Girona.
Dagbjartur og Ragnar léku báðir fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari, 67 höggum. Þeir eru jafnir í 12. sæti ásamt tíu öðrum.
Dagbjartur lék enn og aftur mjög stöðugt golf og fékk fjóra fugla og 14 pör.
Ragnar fékk fjóra fugla, einn örn og einn tvöfaldan skolla.
Sigurður Arnar lék á tveimur yfir pari, 72 höggum. Hann fékk tvöfaldan skolla á 2. braut en svaraði með þremur fuglum á næstu sjö holum. Á seinni níu fékk hann tvo skolla og annan tvöfaldan skolla og einn fugl. Hann er jafn í 61. sæti.
Á öðru stigi úrtökumótanna eru fjögur mót leikin samtímis á Spáni, á Desert Springs Resort í Almería, Golf Las Pinaillas í Albacete, Fontanals Golf Club í Girona og Isla Canela Links í Huelva. Leikinn er 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum og keppa kylfingarnir um sæti á lokaúrtökumótinu.


