Nokkrir vellir enn opnir
Nokkrir golfvellir eru enn opnir enda hefur veður verið frekar hagstætt og hlýindi. Það þykja ekki fréttir að vellir á Suðurnesjum séu opnir en Hvaleyrarvöllur sem hafði lokað tilkynnti opnun fyrir félagsmenn síðasta föstudag, 30. október.
Sjá má í Golfboxinu að enn er hægt að komast í golf nokkuð víða, m.a. norðanlands, m.a. á Akureyri. GR-ingar komast á Landið í Korpunni og félagsmenn í Mosó komast enn í golf á Hlíðavelli.
Nokkrir vellir sem eru enn opnir eru það einungis fyrir félagsmenn sína. Flestir kylfingar á Íslandi eru þó komnir í „inni“-golfskóna og byrjaðir á nýju hermatímabili.


