LIV mótaröðin hættir
LIV Golf-mótaröðin hefur sagt sitt síðasta en í gær var tilkynnt fyrir gjaldþrotadómstóli í New Jersey í Bandaríkjunum að rekstur mótaraðarinnar yrði lagður niður. LIV Golf hefur sjálft staðfest ákvörðunina í opinberri tilkynningu. Þar kemur fram að áform um endurreisn mótaraðarinnar undir heitinu LIV 2.0 hafi ekki gengið eftir.
Margir kylfingar á mótaröðinni höfðu tilkynnt að þeir yrðu ekki áfram, þar á meðal Jon Rahm, Sergio Garcia, Tyrell Hatton og fleiri. Nokkrir hafa þegar tilkynnt endurkomu á DP mótaröðina við mismikinn fögnuð sumra keppenda þar.
Englendingurinn Lee Westwood sagði nýlega að það væri ekkert launungarmál að hann hefði farið yfir á LIV vegna peninganna og bætti því við að hann hefði unnið sér inn meira fé en hann hefði getað ímyndað sér en kappinn er orðinn rúmlega fimmtugur og gæti farið að keppa á öldungamótaröðunum.
LIV Golf hóf keppni árið 2022 undir forystu Greg Norman og breytti atvinnugolfinu með gríðarlegum samningum, háum verðlaunafjárhæðum og liðakeppni samhliða einstaklingskeppni.
Mótaröðin hélt alls 62 mót á fimm árum. Síðasta mótið fór fram í Indianapolis í ágúst 2026.


