Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory heitur í Abu Dhabi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 6. nóvember 2026 kl. 10:02

Rory heitur í Abu Dhabi

Rory Mcilroy lék annan hringinn á Abu Dhabi mótinu á DP mótaröðinni á níu höggum undir pari og er kominn í toppbarátuna eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á tveimur undir en athygli vakti að hann fékk dæmd á sig tvö högg í víti fyrir að hagræða legu bolta í stuttu innáhöggi.

Rory sagði í viðtali að hann hafi bara verið að fá tilfinningu fyrir stöðu boltans og legunni en hann hefði óafvitandi ýtt kylfuhausnum niður og grasi í leiðinni sem hefði ekki gengið til baka. Það væri ekki löglegt og víti því réttur dómur. Kappinn var í miklu stuði á öðrum hringnum og hann fékk ellefu fugla og tvo skolla í -9 hring.

Jon Rahm er meðal keppenda ásamt Tyrell Hatton, fyrrverandi LIV leikmönnum og þeir eru báðir sjóðheitir og í toppbaráttunni.

Eugenio Chacarra er efstur á stigalistanum en næstu menn eru Patrick Reed og Rory.