Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Birgir og Gísli í 17. og 19. sæti í kjörinu á íþróttamanni ársins
Mánudagur 5. janúar 2015 kl. 11:27

Birgir og Gísli í 17. og 19. sæti í kjörinu á íþróttamanni ársins

Birgir Leifur Hafþórsson Íslandsmeistari í höggleik og Gísli Sveinbergsson Íslandsmeistari í höggleik 17-18 ára voru einu kylfingarnir sem fengu atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2015. Birgir Leifur fékk 11 atkvæði og endaði í 17. sæti í kjörinu og Gísli fékk 9 atkvæði og endaði í 19. sæti.

Kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í 25 skipti og var Magnús Guðmundsson úr GA sá fyrsti árið 1963. Sigurður Pétursson úr GR hefur náð bestum árangri í kjörinu en hann varð þriðji árið 1983. Úlfar Jónsson deildi 2.-10. sætinu árið 1987 en þá gátu félagsmenn í Samtökum íþróttafréttamanna ekki komið sér saman um röðina í kjörinu eftir að Arnór Guðjohnsen knattspyrnumaður var kjörinn iþróttamaður ársins.

Tvívegis hafa tveir kylfingar verið á meðal tíu efstu; í fyrra skiptið árið 1993 þegar Úlfar Jónsson og Þorsteinn Hallgrímsson voru á listanum. Ólöf María Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson voru á meðal tíu efstu árið 2004 en Ólöf María náði fjórða sætinu en það er besti árangur hjá íslenskum kvenkylfing.

Eftirtaldir kylfingar hafa náð inn á topp 10 listann í kjörinu á íþróttamanni ársins:

1963:
10. sæti: Magnús Guðmundsson, GA (1)

1965:
7. sæti: Magnús Guðmundsson, ÍBA (2)   

1977:
9. sæti: Björgvin Þorsteinsson, GA (1)

1979:
8. sæti: Hannes Eyvindsson, GR (1)

1981:
6. sæti: Ragnar Ólafsson, GR (1)

1984:
9. sæti: Ragnar Ólafsson, GR (2)

1985:
3. sæti: Sigurður Pétursson, GR  (1)             

1986:
9. sæti: Úlfar Jónsson, GK (1)         

1987:
2-10 sæti: Úlfar Jónsson, GK (2)

1988:
5. sæti: Úlfar Jónsson, GK (3)

1990:
4. sæti: Úlfar Jónsson, GK (4)

1992:
5. sæti: Úlfar Jónsson, GK (5)

1993:
5. sæti:  Úlfar Jónsson, GK (6)
8. sæti: Þorsteinn Hallgrímsson, GV (1)

1995:
5. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (1)

1997:
6. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (2)

1998:
9. sæti: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (1)

2000:
5. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, Leynir (3)

2001:
6. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, GL (4)

2002:
10. sæti: Ólöf María Jónsdóttir, GK (1)

2003:
9. sæti: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (2) 

2004:
5. sæti: Ólöf María Jónsdóttir, GK (2)
6. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (5)  

2005:
8. sæti:  Ólöf María Jónsdóttir, GK (3)

2006:
4. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (6)             

2007:
5. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (7)

2011:
10. sæti: Ólafur Björn Loftsson, NK (1)

Íþróttamenn úr frjálsíþróttum hafa oftast verið kjörnir íþróttamenn ársins eða í 21 skipti, þar á eftir kemur handknattleikur (12), knattspyrna (9), sund (8), kraftlyftingar (3), körfuknattleikur (2), júdó (1), þolfimi (1), hestaíþróttir (1).

Vilhjálmur Einarsson hefur oftast fengið þessa viðurkenningu eða alls fimm sinnum, þar á eftir koma Ólafur Stefánsson  (4), Einar Vilhjálmsson (3), Hreinn Halldórsson (3), Örn Arnarson (3), Valbjörn Þorláksson (2), Jón Arnar Magnússon (2), Ásgeir Sigurvinsson (2), Skúli Óskarsson (2), Eiður Smári Guðjohnsen (2). Aðrir hafa fengið þessa viðurkenningu einu sinni. 

Fjórar konur hafa verið efstar í þessu kjöri, Sigríður Sigurðardóttir handknattleikskona var sú fyrsta árið 1964, Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona árið 1991, Vala Flosadóttir frjálsíþróttakona var sú þriðja í röðinni árið 2000 og Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona árið 2007.

1956      Vilhjálmur Einarsson (1), Frjálsíþróttir (1)

1957      Vilhjálmur Einarsson (2), Frjálsíþróttir (2)

1958      Vilhjálmur Einarsson (3), Frjálsíþróttir (3)

1959      Valbjörn Þorláksson (1), Frjálsíþróttir (4)

1960      Vilhjálmur Einarsson (4), Frjálsíþróttir (5)

1961      Vilhjálmur Einarsson (5), Frjálsíþróttir (6)

1962      Guðmundur Gíslason (1), Sund (1)

1963      Jón Þ. Ólafsson (1), Frjálsíþróttir (7)

1964      Sigríður Sigurðardóttir (1), Handbolti (1)

1965      Valbjörn Þorláksson (2), Frjálsíþróttir (8)

1966      Kolbeinn Pálsson (1), Körfubolti (1)

1967      Guðmundur Hermanns. (1), Frjálsíþróttir (9)

1968      Geir Hallsteinsson (1), Handbolti (2)

1969      Guðmundur Gíslason (1), Sund (2)

1970      Erlendur Valdimarsson (1), Frjálsíþróttir (10)

1971      Hjalti Einarsson (1), Handbolti (3)

1972      Guðjón Guðmundsson(1), Sund (3)

1973      Guðni Kjartansson (1), Knattspyrna (1)

1974      Ásgeir Sigurvinsson (1), Knattspyrna (2)

1975      Jóhannes Eðvaldsson (1, Knattspyrna (3)

1976      Hreinn Halldórsson (1), Frjálsíþróttir (11)

1977      Hreinn Halldórsson (2), Frjálsíþróttir (12)

1978      Skúli Óskarsson (1), Kraftlyftingar (1)

1979      Hreinn Halldórsson (3), Frjálsíþróttir (13)

1980      Skúli Óskarsson (2), Kraftlyftingar (2)

1981      Jón Páll Sigmarsson (1), Kraftlyftingar (3)

1982      Óskar Jakobsson (1), Frjálsíþróttir (14)

1983      Einar Vilhjálmsson (1), Frjálsíþróttir (15)

1984      Ásgeir Sigurvinsson (2), Knattspyrna (4)

1985      Einar Vilhjálmsson (2), Frjálsíþróttir (16)

1986      Eðvarð Þór Eðvarðsson (1), Sund (4)

1987      Arnór Guðjohnsen (1), Knattspyrna (5)

1988      Einar Vilhjálmsson (3), Frjálsíþróttir (17)

1989      Alfreð Gíslason (1), Handbolti (4)

1990      Bjarni Friðriksson (1), Júdó (1)

1991      Ragnheiður Runólfsd. (1), Sund (5)

1992      Sigurður Einarsson (1), Frjálsíþróttir (18)

1993      Sigurbjörn Bárðarson (1), Hestaíþróttir (1)

1994      Magnús Scheving (1), Þolfimi (1)

1995      Jón Arnar Magnússon (1), Frjálsíþróttir (19)

1996      Jón Arnar Magnússon (2), Frjálsíþróttir (20)

1997      Geir Sveinsson (1), Handbolti (5)

1998      Örn Arnarson (1), Sund (6)

1999      Örn Arnarson (2), Sund (7)

2000      Vala Flosadóttir (1), Frjálsíþróttir (21)

2001      Örn Arnarson (3), Sund (8)

2002      Ólafur Stefánsson (1), Handbolti (6)

2003      Ólafur Stefánsson (2), Handbolti (7)

2004      Eiður Smári Guðjohns. (1), Knattspyrna (6)

2005      Eiður Smári Guðjohns. (2), Knattspyrna (7)

2006      Guðjón Valur Sigurðs. (1), Handbolti (8)

2007      Margrét Lára Viðarsd. (1), Knattspyrna (8)

2008      Ólafur Stefánsson (3), Handbolti (9)

2009      Ólafur Stefánsson (4), Handbolti (10)

2010      Alexander Petersson (1),  Handbolti (11)

2011      Heiðar Helguson (1), Knattspyrna (9)

2012      Aron Pálmarsson (1), Handbolti (12)

2013      Gylfi Þór Sigurðsson (1), Knattspyrna (9)  

2014      Jón Arnór Stefánsson (1), Körfuknattleikur (2)

Kjörinu var lýst í 59. sinn þann 3. janúar á hófi í Gullhömrum í Reykjavík. Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Unicaja Malaga á Spáni, hlaut sæmdarheitið í ár og er annar körfuboltamaðurinn sem verður fyrir valinu og sá fyrsti í 48 ár.

Jón Arnór fékk 435 stig af 480 mögulegum í kjörinu. Í öðru sæti varð Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og íþróttamaður ársins 2013. Gylfi Þór, sem lék með Tottenham á fyrri hluta ársins og Swansea því síðara, fékk 327 stig í kjörinu. Þriðji varð Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handbolta og Íþróttamaður ársins 2006. Guðjón Valur hóf árið sem leikmaður THW Kiel í Þýskalandi en gekk í raðir Barcelona í Spáni í sumar. Hann fékk samtals 303 stig.

Körfuboltalandslið karla var valið lið ársins með 105 stig af 120 mögulegum. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Stjörnunni, var valinn þjálfari ársins með 69 stig af 120 mögulegum.

Niðurstöður kjörsins í heild sinni 2014:

Íþróttamaður ársins:

1. Jón Arnór Stefánsson (körfubolti) 435 stig

2. Gylfi Þór Sigurðsson (knattspyrna) 327

3. Guðjón Valur Sigurðsson (handbolti) 303

4. Sara Björk Gunnarsdóttir (knattspyrna) 147

5. Aron Pálmarsson (handbolti) 100

6. Eygló Ósk Gústafsdóttir (sund) 65

7. Sif Pálsdóttir (fimleikar) 56

8. Hrafnhildur Lúthersdóttir (sund) 46

9. Hafdís Sigurðardóttir (frjálsar) 44

10. Jón Margeir Sverrisson (íþr. fatlaðra) 36

11. Alfreð Finnbogason (knattspyrna) 26

12. Karen Knútsdóttir (handbolti) 25

13. Helgi Sveinsson (íþr. fatlaðra) 24

14. Aníta Hinriksdóttir (frjálsar) 21

15. Ásgeir Sigurgeirsson (skotfimi) 19

16. Hlynur Bæringsson (körfubolti) 15

17. Birgir Leifur Hafþórsson (golf) 11

18. Dagný Brynjarsdóttir (knattspyrna) 10

19. Gísli Sveinbergsson (golf) 9

20. Aron Einar Gunnarsson (knattspyrna) 8

21. Thelma Björg Björnsdóttir (íþr. fatlaðra) 7

22. Helena Sverrisdóttir (körfubolti) 4

23. Helga María Vilhjálmsdóttir (skíði) 3

24. Ásdís Hjálmsdóttir (frjálsar) 2

– Viðar Örn Kjartansson (knattspyrna) 2

– Lilja Lind Helgadóttir (lyftingar) 2

– Hörður Axel Vilhjálmsson (körfubolti) 2

28. Fanney Hauksdóttir (kraftlyftingar) 1

– Jón Daði Böðvarsson (knattspyrna) 1

– Þormóður Árni Jónsson (júdó) 1

 

Lið ársins:

1. Karlalandslið Íslands í körfubolta 105 stig

2. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu 66

3. Stjarnan (mfl. kk) 24

4. Kvennalandslið Íslands í hópfimleikum 12

5. Karlalandslið Íslands í handbolta 8

6. Landslið Íslands í frjálsíþróttum 1

Þjálfari ársins:

1. Rúnar Páll Sigmundsson 69 stig

2. Alfreð Gíslason 60

3. Heimir Hallgrímsson 48

4. Finnur Freyr Stefánsson 14

5. Dagur Sigurðsson 8

Golffréttamennirnir Sigurður Elvar Þórólfsson og Páll Ketilsson eru í Samtökum íþróttafréttamanna og tóku þátt í kjörinu. Alls tóku 24 félagsmenn SÍ þátt í kjörinu.