Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fjórða serían af „fullri sveiflu“ væntanleg
Einn af stórfréttum ársins 2025 var sigur Rorys á Masters.
Laugardagur 4. apríl 2026 kl. 08:40

Fjórða serían af „fullri sveiflu“ væntanleg

Fjórða serían af sjónvarpsseríunni „Full swing“ á Netflix er væntanleg 17. apríl en stikla hefur verið sett í loftið. Þessi fjórða sería fjallar um golftíðina 2025 en þá gerðist ansi margt og að mati sérfræðinga rafmögnuð.

Árið 2025 sigraði m.a. Rory Mcilroy á Masters og tryggði sér alslemmuna og nýliði vann Opna bandaríska, svo fátt eitt sé nefnt. 

Hér er stiklan.