Birkir Már, vallarstjóri, er kylfingur vikunnar

Birkir Már Birgisson, vallarstjóri á Grafarholtsvelli, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann hefur starfað að golfvallaumhirðu í 11 ár og var m.a. fyrsti Íslendingurinn til að starfa í Ryder-bikarnum og vann á K-Club vellinum í Ryder-bikarnum árið 2006.
Birkir Már lærði golfvallaumhirðu í Elmwood skólanum í Skotlandi og hefur starfað á alls sex völlum, en hann smitaðist af golfbakkteríunni þegar hann var 18 ára gamall. Í haust tók hann við stjórnartaumunum á Grafarholtsvelli eftir að hafa starfað á Kiðjabergsvelli í þrjú ár. Kylfingur.is fékk að kynnast vallarstjóranum aðeins betur og lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Byrjaði að stelast á nóttunni upp á GA eitt sumarið of féll kylliflatur fyrir sportinu og gekk í klúbbinn árið eftir. Þetta var árið 1997.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Æfði flest allt þegar ég var yngri.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Vera með lægri forgjöf en Stefán Ólafur vinur minn sem æfir endalaust. Byrjuðum saman í golfi árið 1997 og ég hef verið lægri en hann alla tíð síðan.“
Helstu afrek í golfinu?
„Vann starfsmannamót GKG á 74 sem er langbesti hringur minn og algert burst. Einnig SÍGÍ meistari 2 ár í röð.“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Þegar driverinn minn brotnaði í upphafshögginu á 15. á Jaðarsvelli. Hausinn flaug töluvert lengra en boltinn.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Örugglega ekki, kem samt ef einhver býður.“
Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina næsta sumar?
„Hún er nú þegar allt of lág.“
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Gríðarleg högglengd er klárlega styrkleikinn. Eins metra púttin veikleikinn.“
Hver er uppáhalds kylfingurinn?
„Siggi Palli hér heima og Garcia úti.“
Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Fékk frávísun í mínu fyrsta meistaramóti hjá GA fyrir 12 árum fyrir að skrifa ekki undir skorkortið. Var í byrjendaflokknum og minnir það hafi verið fjórir sem gerðu slíkt hið sama. Mætti beygja nokkrar reglur í byrjendaflokkum.“
Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Golfi.“
Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Arsenal, klárlega besta liðið.“
Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Óli í Keili.“
Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
„Skipti mikið um golfbolta ef mér gengur illa. Það hlýtur bara að vera boltanum að kenna þegar ég spila illa.“
Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Birgir Leifur Hafþórsson bestur og Guðmundur Ágúst Kristjánsson efnilegastur.“
Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
„Skemmtilegast er rólegt miðnæturgolf með nokkra kalda í settinu. Leiðinlegast er að spila með fólki sem svindlar.“
Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Var á 3. degi í meistaramótinu á GA með sirka 34 í forgjöf. Var að spila hreint frábært golf. Vissi ekki alveg á hvaða skori ég var, enda var ég ekki að telja en vissi að það var nokkuð gott. Svo kom að inná högginu á 15., skalla boltann allsvakalega og hann flýgur í átt að flöt, lendir fremst á henni og tekur eitt bopp og svo mikinn bakspuna og enda bara nokkra cm frá og fæ öruggan fugl. Þá ákvað ég að fara að reikna á hvaða skori ég var (sem voru mikil mistök.) Komst að því að ég var á fimm yfir pari og fór gersamlega á taugum. Fékk tripple á 16. og 17. bogey á 18. og endaði tólf yfir. Samt vel yfir 50 punktar þrátt fyrir slæman endi.“
Fylgist þú mikið með golfi?
Ekki mikið en horfi á öll stóru mótin bæði heima og erlendis
Staðreyndir:
Nafn: Birkir Már Birgisson
Klúbbur: GR
Forgjöf: 8,0
Golfpokinn: Callaway járn X16 ,Wilson tré og odyssey pútter
Golfskór: Klárlega ECCO
Golfhanski: Eitthvað sem ég finn í óskilamununum hverju sinni.
Markmið í golfinu: Vera undir 10 í forgjöf
Fyrirmynd: Pabbi
Uppáhalds matur: Hádegismaturinn hjá Hödda í Grafarholtinu daginn eftir að KR vinnur leik.
Uppáhalds drykkur: Norðlenskur bjór.
Ég hlusta á: U2
Uppáhalds völlurinn: Grafarholt, Jaðar og Kiðjabergið á golfbíl.
Besta skor (hvar): 74 GKG
Besta vefsíðan: Kylfingur.is
Besta blaðið: Fréttablaðið
Besta bókin: Jörðin
Besta bíómyndin: Avatar


