Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Dagbjartur og Sigurður Arnar enduðu í 4. og 5. sæti
Dagbjartur hefur leikið vel á Nordic mótaröðinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 8. maí 2026 kl. 15:15

Dagbjartur og Sigurður Arnar enduðu í 4. og 5. sæti

Dagbjartur Sigurbrandsson og Sigurður Arnar Garðarson voru í toppbaráttunni á Royal Unibrew mótinu á Nordic mótaröðinni sem lauk í Danmörku dag. Dagbjartur endaði í 4. sæti og Sigurður í 5. sæti.

Dagbjartur lék á 11 höggum undir pari 67-71-67 en Sigurður var höggi á eftir tíu undir pari 69-69-68. Sigurvegarinn Sebastian Eldsæther endaði á 14 undir pari. Frábær spilamennska hjá Íslendingunum sem færðust upp stigalistann með þessari frammistöðu.

Hlynur Bergsson endaði jafn í 42. sæti á höggi undir pari 69-71-75.

Dagbjartur er í 20. sæti stigalistans og hefur leikið í tíu mótum.

Sigurður Arnar er í 32. sæti eftir fjögur mót.

Hlynur er í 41. sæti eftir níu mót.

Lokastaðan.