Fréttir

Björn Viktor og Vala María klúbbmeistarar GL 2022
Björn Viktor Viktorsson og Vala María Sturludóttir. Ljósmynd: skagafrettir.is
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
fimmtudaginn 14. júlí 2022 kl. 21:35

Björn Viktor og Vala María klúbbmeistarar GL 2022

Björn Viktor Viktorsson og Vala María Sturludóttir eru klúbbmeistarar GL 2022.

Björn Viktor lék hringina þrjá á 227 höggum (80-71-76) eða samtals á 11 höggum yfir pari Garðavallar, átta höggum betur en Kristvin Bjarnason. Þórður Emil Ólafsson varð þriðji, fjórum höggum á eftir Kristvin.

Vala María lék hringina þrjá á 247 höggum (80-80-87) eða samtals á 31 höggi yfir pari vallarins. Elsa Maren Steinarsdóttir varð önnur, sex höggum á eftir Völu Maríu.

Lokastaðan á mótinu